Meðhöndlun líks

Dreifibréf Landlæknisembættisins nr. 4/2005
Tilmæli Landlæknisembættisins

 


Varðandi meðhöndlun líks í tilvikum þar sem lögregla hefur verið kölluð til


I. Inngangur
Þegar andlát ber að garði í heimahúsi, eða annars staðar utan sjúkrahúss, er lögregla oft kölluð til. Lögreglan hefur lögsögu málsins með höndum og stjórnar aðgerðum eftir að lífgunartilraunum hefur verið hætt (ef þær hafa verið reyndar). Varðveisla vettvangs er mikilvæg og nauðsynlegt vegna rannsóknarhagsmuna að hreyfa sem minnst, við hinum látna. Í öllum tilvikum er nauðsynlegt að sjúkraflutningamenn fái samþykki lögreglu til frekari aðgerða. Það gildir einnig um meðhöndlun líks sem flutt hefur verið af vettvangi og á bráðamóttöku, þar sem viðkomandi er formlega úrskurðaður látinn.

II. Gátlisti
Gátlisti varðandi meðhöndlun líks og muna þar sem lögregla hefur verið kölluð til:

  1. Lögregla hefur lögsögu málsins með höndum og stjórnar aðgerðum. Alltaf þarf að fá samþykki lögreglu fyrir aðgerðum eftir að viðkomandi hefur verið lýstur látinn.
  2. Ekki má fjarlægja barkarennu nema með leyfi lögreglu, en hana má klippa fyrir innan tanngarð.
  3. Kokrennu má ekki fjarlægja ef um manndráp er að ræða. Í öðrum tilvikum má fjarlægja hana, setja í poka, innsigla og láta fylgja með líkinu á rannsóknastofuna. Koma skal fram á umbúðum hver fjarlægði og innsiglaði kokrennuna.
  4. Ekki má fjarlægja nálar sem settar hafa verið upp til vökva- eða lyfjagjafar, nema með leyfi lögreglu. Binda má um nálarnar.
  5. Allir stungustaðir (þ.m.t. á brjóstkassa) skulu merktir á húð t.d. með því að setja yfir þá plástur eða draga hring umhverfis með tússi/penna.
  6. Brjóstholsdren má fjarlægja, með leyfi lögreglu ef inngöngustaðir eru merktir (með plástri eða tússi) og endurlífgunarskýrsla fylgir líkinu.
  7. Ef settur hefur verið upp þvagleggur (og þvagi tappað af) má fjarlægja legginn. Rannsóknastofa í meinafræði óskar eftir að fá innihaldið sent með líkinu á rannsóknarstofuna (ekki henda þvaginu).
  8. Ekki má setja bómull í leggöng eða endaþarm.
  9. Ekki skal þrífa lík eða snyrta sérstaklega nema að fengnu samþykki lögreglu.
  10. Allt sem fjarlægt er af líkinu (fatnaður, munir og annað sem fjarlægt er eftir lífgunartilraunir) skal sett í poka og innsiglað. Ef hægt er, skal nota bréfpoka undir fatnað og innsigla aðskilinn frá öðru sem fjarlægt er. Ef fatnaður er blautur eða blóðugur skal setja hverja flík fyrir sig í bréfpoka og innsigla. Best er að afhenda slíkt lögreglu á vettvanginum eða bráðamóttöku, en senda að öðrum kosti með líkinu á Rannsóknastofu í meinafræði.
  11. Endurlífgunarskýrsla skal alltaf fylgja með líkinu á rannsóknastofuna.
  12. Ef um manndráp er að ræða skulu sjúkraflutningamenn (og neyðarbílslæknir) skilja eftir nafn og símanúmer hjá lögreglu á vettvangi.

III. Endurlífgunarskýrsla
Eftirfarandi listi eru atriði sem réttarlæknir óskar eftir að verði tekin sérstaklega fram í endurlífgunarskýrslu, sem síðan verði send með líkinu á Rannsóknastofu í meinafræði.

  1. Barkaþræðing (intubation):
    a) Var hún gerð?
    b) Var hún auðveld/erfið?
    c) Þurfti margar tilraunir áður en þræðing tókst?

  2. Kokrenna:
    a) Var sett kokrenna?

  3. Stungur: (Takið fram, þó stungur séu merktar á líki)
    a) Hvar var stungið án þess að hægt væri að koma inn nál?
    b) Hvar voru nálar settar?
    c) Var tekið eftir stunguförum á líkinu áður en stungið var.?
    d) Var stungið í brjóstkassa?

  4. Brjóstholsslöngur (thoraxdren):
    a) Voru brjóstholsslöngur settar?
    b) Kom loft í slöngurnar?
    c) Kom vökvi eða blóð í slöngurnar, og þá hversu mikið?

  5. Þvagleggur:
    a) Var settur þvagleggur?
    b) Var þvag fjarlægt og þá hversu mikið?
    c) Sendið þvagið með líkinu á rannsóknarstofuna.

  6. Stelling líks:
    a) Var hreyft við líkinu við framkvæmd lífgunartilrauna?
    b) Í hvaða stellingu var viðkomandi áður en lífgunartilraunir hófust?

  7. Var átt við fatnað líks við lífgunartilraunir og þá hvernig?

  8. Hvenær hófust lífgunartilraunir og hvenær lauk þeim?

31. maí 2005
Landlæknir

 

Sent til heilbrigðisstofnana, sjúkrahúsa, heilsugæslustöðva og dvalar- og hjúkrunarheimila

Uppfært 28. nóvember 2008




Aukaval


Leturstærðir


Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli