Um blöndun þurrmjólkur

Dreifibréf Landlæknisembættisins nr. 5/2005

 

Ráðleggingar til að forðast fjölgun hættulegra baktería í ungbarnablöndum (þurrmjólk)

Landlæknisembættið og Umhverfisstofnun vilja benda forstöðumönnum heilbrigðisstofnana og heilbrigðisstarfsfólki á að kynna sér vel meðfylgjandi ráðleggingar um blöndun á þurrmjólk sem teknar hafa verið saman, þýddar og staðfærðar að fyrirmynd frá Matvælaöryggisstofnun Evrópu.

Embættið hvetur ennfremur sjúkrahús og heilbrigðisstofnanir til að gera ítarlegri verklagsreglur um blöndun, meðhöndlun, geymslu og notkun ungbarnablanda.

Ráðleggingarnar eru einnig aðgengilegar á vefsetrum Landlæknisembættisins, www.landlaeknir.is, og Umhverfisstofnunar www.ust.is

 

23. júní 2005
Landlæknir

 

Sent heilbrigðisstofnunum, heilsugæslustöðvum og sjúkrahúsum

Uppfært 28. nóvember 2008




Aukaval


Leturstærðir


Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli