Dreifibréf Landlæknisembættisins nr. 6/2005
Tilkynning frá sóttvarnalækni
Efni: Nýjar leiðbeiningar um greiningu og meðferð höfuðlúsarsmits
Sóttvarnalæknir vill vekja athygli á hjálögðum leiðbeiningum um meðferð við höfuðlúsasmiti en þær hafa verið endurskoðaðar. Hægt er að nálgast þær á heimasíðu Landlæknisembættisins www.landlaeknir.is undir efnisflokknum sóttvarnir/smitsjúkdómar. Í leiðbeiningunum er m.a. mælt með tveggja vikna meðferð sem felst í vandaðri kembingu í a.m.k. fimm skipti og notkun lúsadrepandi efnis í ísóprópýlalkóhóllausn sem sett er í hárið tvisvar sinnum með viku millibili. Minnt er á að frá árinu 1999 hefur höfuðlús verið skráningarskyldur sjúkdómur og því er skylt að senda sóttvarnalækni skýrslu um fjölda höfuðlúsatilfella einu sinni í mánuði.
3. október 2005
Sóttvarnalæknir
Sent yfirlæknum og hjúkrunarforstjórum/-stjórum heilsugæslustöðva, heimilislæknum, skólastjórum grunnskóla, leikskólastjórum. Afrit sent heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytinu, Læknablaðinu, tímaritinu Hjúkrun, Kennarahúsinu, apótekum
Uppfært 28. nóvember 2008