DiTeKiBooster

Dreifibréf Landlæknisembættisins nr. 7/2005
Tilkynning frá sóttvarnalækni



DiTeKiBooster í stað DiTeKik

Frá og með 1. september 2005 mun sölu DiTeKik bóluefnis hér á landi verða hætt þar sem það er ekki lengur framleitt. Í þess stað verður notað DiTekiBooster við bólusetningu 5 ára barna en það inniheldur einnig mótefnavaka gegn barnaveiki, stífkrampa og frumulausri kikhóstabakteríu.

Munurinn á DiTeKik og DiTeKiBooster er sá að DiTekiBooster inniheldur minna magn ofangreindra mótefnavaka (sérstaklega barnaveiki) og má því nota hjá einstaklingum 5 ára og eldri.

Búast má við vægari staðbundnum aukaverkunum af völdum DiTekiBoosters en DiTeKiks.



26. ágúst 2005
Sóttvarnalæknir

 


Sent til heilsugæslustöðva, heimilislækna, Miðstöðvar heilsuverndar barna og Helga Guðbergssonar. Afrit sent Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytinu, Læknablaðinu og tímaritinu Hjúkrun.

Uppfært 28. nóvember 2008




Aukaval


Leturstærðir


Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli