Greiðsla vegna bólusetninga

Dreifibréf Landlæknisembættisins nr. 8/2005
Tilkynning frá sóttvarnalækni



Efni: Greiðsla vegna bólusetninga

Að gefnu tilefni vill sóttvarnalæknir árétta að einungis bólusetningar barna í ung- og smábarnavernd svo og í skólaheilsugæslu eru þeim að kostnaðarlausu og greiddar af hinu opinbera (reglugerð nr. 221/2001, 2. mgr).

Bólusetningar fullorðinna og ferðamanna þurfa einstaklingar hins vegar að greiða sjálfir (reglugerð nr. 221/2001, 3. mgr).

Heilsugæslustöðvar þurfa því að haga innkaupum sínum þannig að einungis reikningur vegna kaupa á bóluefnum í ung- og smábarnavernd og skólaheilsugæslu verði sendur sóttvarnalækni til greiðslu.

 

9. september 2005
Sóttvarnalæknir




Sent til yfirlækna og hjúkrunarforstjóra/-stjóra heilsugæslunnar.
Afrit: Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið

Uppfært 28. nóvember 2008
 




Aukaval


Leturstærðir


Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli