Skil á skýrslum um skráningarskylda smitsjúkdóma

Dreifibréf Landlæknisembættisins nr. 9/2005
Tilkynning frá sóttvarnalækni

 

Efni: Áminning vegna skila á skýrslum um skráningarkylda smitjúkdóma

Lögum samkvæmt ber að skila skýrslum um skráningarskylda smitsjúkdóma, sbr. reglugerð nr. 129/1999 með síðari breytingum. Mikill misbrestur er á að þessum skýrslum sé skilað mánaðarlega eins og ætlast er til. Sumar heilsugæslustöðvar skila skýrslum með reglubundnum hætti, sumar aldrei og sumar stundum. Þetta hefur leitt til þess að erfitt er að meta áhrif inflúensufaraldursins í janúar sl. Nú er vitað að hann leiddi til talsverðs umframdauða í samfélaginu (sbr. Farsóttafréttir 2005;6:2)

Þess er hér með vinsamlega farið á leit að bætt verði úr skýrslugerð vegna skráningarskyldra smitsjúkdóma nú þegar.

Hjálagt er yfirlit yfir skil á skýrslugerð um skráningarskylda smitsjúkdóma það sem af er árinu 2005.


 

9. september 2005
Sóttvarnalæknir


Sent yfirlæknum heilsugæslustöðva.
Afrit: Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið.

Uppfært 28. nóvember 2008




Aukaval


Leturstærðir


Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli