Dreifibréf Landlæknisembættisins nr. 13/2005
Tilkynning frá sóttvarnalækni
Efni: Bólusetning gegn hettusótt
Eins og fram hefur komið í Farsóttafréttum sóttvarnalæknis (www.landlaeknir.is) þá hafa 73 einstaklingar fengið staðfesta hettusótt á tímabilinu maí til og með nóvember 2005. Síðastliðið haust var faraldurinn talinn vera í rénum en nú hefur komið í ljós að hann er vaxandi ef eitthvað er. Einkum eru það einstaklingar á aldrinum 20 til og með 24 ára sem eru að sýkjast, en það eru þeir einstaklingar sem misstu af MMR bólusetningunni sem hófst hjá 18 mánaða gömlum börnum 1989 og 9 ára börnum 1994.
Heilsugæslan er beðin um að hvetja alla einstaklinga á sínu svæði sem fæddir eru 1981 til og með 1985 til að láta bólusetja sig með MMR (ein sprauta). Bólusetningin er ofangreindum einstaklingum að kostnaðarlausu en greidd af hinu opinbera eins og aðrar almennar ungbarnabólusetningar.
7. desember 2005
Sóttvarnalæknir
Sent yfirlæknum og hjúkrunarforstjórum/-stjórum heilsugæslunnar, Miðstöð heilsuverndar barna. Afrit til Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytisins, Læknablaðsins og tímaritsins Hjúkrun.
Uppfært 28. nóvember 2008