Skortur á Diftavax

Dreifibréf Landlæknisembættisins nr. 14/2005
Tilkynning frá sóttvarnalækni

 

Efni:  Skortur á Diftavax

Enn á ný er kominn upp skortur á Diftavax (difteria-/ tetanus toxoid) bóluefninu sem gefið er 14 ára börnum í almennum barnabólusetningum hér á landi.
Ástæða þess að skortur er á Diftavax nú, er að mikil notkun hefur verið á bóluefninu hér á landi utan við almennar barnabólusetningar.
Hér á landi má búast við að árlega þurfi um 4000-4500 einstaklingar Diftavax bólusetningu  í almennum bólusetningum en hið opinbera greiðir hins vegar fyrir um 8000 skammta á hverju ári.

Sóttvarnalæknir vill leggja áherslu á eftirfarandi:

  • DiTeBooster frá Statens Serum Institut mun koma í stað Diftavax þar til næsta sending fæst af Diftavax sem líklega verður í febrúar 2006. DiTeBooster er sambærilegt að innihaldi og Diftavax og verkun og aukaverkanir því sambærilegar.  DiTeBooster verður á undanþágulista hjá Lyfjastofnun frá 1. janúar 2006.
  • Hið opinbera greiðir einungis fyrir bóluefni sem notuð eru í almennum barnabólusetningum. Bóluefni sem notuð eru hjá fullorðnum og ferðamönnum eiga því að greiðast af heilsugæslustöðvunum sjálfum sem síðan eiga endurkröfurétt á hinn bólusetta.

 

19. desember 2005
Sóttvarnalæknir

 

Sent yfirlæknum og hjúkrunarforstjórum/-stjórum heilsugæslunnar, Miðstöð heilsuverndar barna. Afrit til Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytisins, Læknablaðsins og tímaritsins Hjúkrun.

Uppfært 28. nóvember 2008




Aukaval


Leturstærðir


Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli