Bólusetning gegn hettusótt, gjaldtaka

Dreifibréf Landlæknisembættisins nr. 2/2006
Tilkynning frá sóttvarnalækni



Efni:  Bólusetning gegn hettusótt - gjaldtaka

Vakin hefur verið athygli sóttvarnalæknis á gjaldtöku sumra heilsugæslustöðva á bólusetningu gegn hettusótt.  Kvartað er yfir háum kostnaði þeirra sem ekki falla undir skilgreindan áhættuhóp fyrir hettusótt.

Fyrir utan komugjald hefur fólk verið krafið um 5400 kr. fyrir bólusetninguna. Hér er um misskilning að ræða. Ekki er notast við eingilt hettusóttarbóluefni. Notast er við Priorix (MMR) en skammturinn af því kostar 1189 kr. með virðisaukaskatti. Að höfðu samráði við heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið ber að innheimta 1189 kr. fyrir bólusetninguna hjá þeim sem fæddir eru fyrir 1981 og óska eftir bólusetningu. Þeir sem fæddir eru eftir 1985 og hafa ekki verið bólusettir fá bólusetninguna sér að kostnaðarlausu.   Ef innheimt er fyrir þessa bólusetningu skal ekki senda reikning fyrir henni til sóttvarnalæknis.

 

Seltjarnarnesi, 10. janúar 2006
Sóttvarnalæknir

 

Sent yfirlæknum og hjúkrunarforstjórum/-stjórum heilsugæslunnar, Miðstöð heilsuverndar barna. Afrit til Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytisins.

Uppfært 28. nóvember 2008




Aukaval


Leturstærðir


Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli