Persónuskilríki
Dreifibréf Landlæknisembættisins nr. 5/2006
Að gefnu tilefni beinir Landlæknisembættið því til heilsugæslustöðva að krefjast persónuskilríkja hjá þeim sem óska eftir afgreiðslu á stöðinni og starfsfólk þekkir ekki deili á.
Tilefni þessa er að Landlæknisembættinu er kunnugt um nokkur tilvik, þar sem fólk hefur villt á sér heimildir til þess að fá útskrifuð lyf, sem það misnotar. Um er að ræða fólk sem kemur vel fyrir og hefur þannig tekist að fá útskrifuð sterk verkjalyf, svefnlyf og róandi lyf. Sérstök ástæða er að vara við útskriftum á þessi lyf ásamt örvandi lyfjum, einkum ef læknir þekkir ekki viðkomandi einstakling.
Seltjarnarnesi, 24. apríl 2006
Landlæknir
Uppfært 28. nóvember 2008