Viðtöl fjölmiðla við sjúklinga
Dreifibréf Landlæknisembættisins nr. 6/2006
Viðtöl fjölmiðla við sjúklinga og umfjöllun um málefni þeirra
Í vöxt fer að fjölmiðlar, dagblöð, tímarit, útvarps- og sjónvarpsstöðvar, fjalli um málefni einstakra sjúklinga með viðtölum við þá og myndbirtingum. Viðtöl þessi eru á stundum tekin á heilbrigðisstofnunum, oftast sjúkrahúsum. Þó að fólki, og þar með talið sjúklingum, sé að sjálfsögðu í sjálfsvald sett hvort það ræði við fjölmiðla, er að ýmsu öðru að gæta þegar viðtöl eru tekin á sjúkrastofnunum. Þar eru aðrir sjúklingar og sjáist þeir á mynd verður að sjálfsögðu að leita samþykkis þeirra. Þó ekki sé gert ráð fyrir að aðrir sjáist í mynd en sá sem viðtal er tekið við, er alls ekki víst að öðrum sjúklingum sé um að fjölmiðlafólk sé inni á sjúkrastofnunum, sjúkdómur sjúklings er einkamál hans og viðvera fjölmiðlafólks í þessu efni er oftast nær mun viðkvæmari en annarra heimsóknargesta.
Af þeirri ástæðu vill Landlæknisembættið mæla með að neðangreindar vinnureglur gildi um samskipti fjölmiðla við sjúklinga á sjúkrastofnunum:
- Forstöðumenn og faglegir stjórnendur heilbrigðisstofnana bera ábyrgð varðandi aðgengi fjölmiðla að sjúklingum og upplýsingum til fjölmiðla um sjúklinga og vistmenn stofnana.
- Ávallt skal leita samþykkis æðstu fagstjórnenda stofnunar eða þeirra sem þeir tilgreina áður en leyfi til töku viðtals er veitt inni á stofnuninni, jafnvel þó samþykki sjúklings/aðstandenda liggi fyrir.
- Tryggja verður að viðtöl og myndataka séu með vilja og fullu samþykki sjúklinga og/eða aðstandenda þeirra þegar um börn er að ræða.
- Þar sem því verður við komið skal leitast við að slík viðtöl fari ekki fram inni á venjulegum sjúkrastofum eða göngum og sjúklingnum boðið að fara með fjölmiðlamanninum á afviknari stað.
- Sé ekki fallist á þessi skilyrði verður að tjá sjúklingi og viðtalsbeiðendum að viðtalið verði að bíða útskriftar sjúklingsins.
- Mikilvægt er að virðingar sjúklings sé gætt í viðtölum af þessu tagi og að metið sé að sjúklingurinn hafi í reynd hæfni til þess að meta mögulegar afleiðingar slíkra viðtala eða umfjöllunar.
Seltjarnarnesi, 17. maí 2006
Landlæknir
Sent til lækninga- og hjúkrunarforstjóra heilbrigðisstofnana og hjúkrunarforstjóra hjúkrunar- og dvalarheimila
Uppfært 28. nóvember 2008