Nýbúar og erlend ættleiðingabörn - breyting á dr.br. nr. 5/2000

Dreifibréf Landlæknisembættisins nr. 7/2006

Tilkynning frá sóttvarnalækni



Efni: Nýbúar og erlend ættleiðingabörn - breyting á dreifibréfi nr. 5/2000

Ráðleggingar varðandi bólusetningar á börnum með engar eða óþekktan fjölda fyrri ónæmisaðgerða.  

Þegar ekki fylgja börnum nýbúa eða ættleiðingarbörnum frá öðrum löndum upplýsingar um ónæmisaðgerðir er æskilegt að gefa forráðamönnum barnsins stuttan frest til að afla þeirra. Nægjanlegt er að fá ljósrit eða fax frá fyrra heimalandi. Fáist engar upplýsingar um fyrri bólusetningar eða þær óljósar, skal líta á barn sem óbólusett.  

Vísað er í leiðbeiningar um bólusetningar ,,Yfirlit yfir almennar bólusetningar á Íslandi frá janúar 2004."
(Sjá uppfært skjal á vefsetri Landlæknisembættisins:  Upplýsingar fyrir heilbrigðisstarfsfólk).    

 

Seltjarnarnesi, 30. júní 2006
Sóttvarnalæknir

 

Sent yfirlæknum og hjúkrunarforstjórum/-stjórum heilsugæslunnar, Miðstöð heilsuverndar barna, Göngudeild smitsjúkdóma barna, Lungna- og berklavarnadeild Heilsuverndarstöð Reykjavíkur.
Afrit til Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytisins.

Uppfært 28. nóvember 2008




Aukaval


Leturstærðir


Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli