Tölvupóstföng heilbrigðisstofnana
Dreifibréf Landlæknisembættisins nr. 10/2006
Tilhögun tölvupóstfanga á heilbrigðisstofnunum
Landlæknisembættið sendir margs konar upplýsingar, fyrirspurnir og tilmæli til heilbrigðisstofnana. Þó nokkur hluti slíkra sendinga fer með tölvupósti.
Nokkuð hefur borið á því að tölvupóstur hefur ekki skilað sér. Þetta stafar í mörgum tilvikum af því að tölvupóstföng starfsmanna breytast í samræmi við mannabreytingar. Vegna þess hve erfitt reynist að fylgjast með og halda utan um slíkar breytingar, mælist landlæknir til þess að hver heilbrigðisstofnun (sjúkrahús, heilsugæslustöðvar, hjúkrunar- og dvalarheimili o.s.frv.) komi sér upp almennu tölvupóstfangi svo sem „mottaka@.... .is?. Margar stofnanir hafa þegar slíkt tölvupóstfang og er það mjög til bóta.
Starfsmaður móttöku á hverri stofnun ber því eftirleiðis ábyrgð á að koma viðkomandi tölvuskeyti áleiðis til þeirra aðila sem tilgreindir eru í inngangi skeytis.
Allar stofnanir, þar með talið þær sem þegar hafa tekið upp slíkt tölvupóstfang, eru vinsamlegast beðnar um að senda tilkynningu þar að lútandi á: mottaka@landlaeknir.is fyrir 30. nóvember 2006.
Seltjarnarnesi, 3. október 2006
Landlæknir
Sent til heilbrigðisstofnana, heilsugæslustöðva/sjúkrahúsa og hjúkrunar- og dvalarheimila.
Uppfært 28. nóvember 2008