Ný eyðublöð v/fóstureyðinga og ófrjósemisaðgerða 2006

Dreifibréf Landlæknisembættisins nr. 11/2006


Ný umsóknareyðublöð fyrir fóstureyðingar og ófrjósemisaðgerðir

Vísað er í lög nr. 25/1975 um ráðgjöf og fræðslu varðandi kynlíf og barneignir og um fóstureyðingar og ófrjósemisaðgerðir. Samkvæmt 13. og 19. greinum laganna skulu umsóknir, greinargerðir og vottorð rituð á þar til gerð eyðublöð sem landlæknir gefur út.

Umsóknareyðublöð fyrir fóstureyðingar og ófrjósemisaðgerðir voru gefin út haustið 2004 og tóku þau við af eyðublöðum sem verið höfðu í notkun frá gildistöku laganna. Sú reynsla sem fengist hefur af notkun þeirra eyðublaða gefur tilefni til lítilsháttar breytinga á þeim. Þessar breytingar eru unnar með hliðsjón af athugasemdum frá læknum og félagsráðgjöfum. Eyðublöðin eru því gefin út aftur.

Samhliða eyðublöðunum eru gefnar út leiðbeiningar um útfyllingu þeirra. Mikilvægt er að kynna sér innihald leiðbeininganna til þess að betra samræmi fáist við útfyllingu eyðublaðanna. Vakin er athygli á því að nú eru eyðublöðin einnig gefin út á ensku.

Nýju eyðublöðin fyrir fóstureyðingar og ófrjósemisaðgerðir taka gildi frá og með 31. október 2006. Meðfylgjandi eru eintök af eyðublöðunum og leiðbeiningum um útfyllingu þeirra. Eyðublöðin er einnig að finna á vef Landlæknisembættisins undir Eyðublöð. Hægt er að nálgast þau á pdf-formi eða sem ritvinnsluskjal þar sem hægt er að fylla út viðeigandi reiti í tölvu. Athugið að undirskrift lækna og umsækjenda er þó alltaf nauðsynleg
.

 

Seltjarnarnesi, 13. október 2006
Landlæknir

Sent til lækna og félagsráðgjafa

Uppfært 28. nóvember 2008




Aukaval


Leturstærðir


Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli