Koktúba með vélindaopi

Dreifibréf Landlæknisembættisins nr. 12/2006


Tilmæli landlæknis um að koktúba með vélindaopi verði tekin upp sem hjálparöndunarvegur í sjúkraflutningum

Að tilmælum Endurlífgunarráðs Íslands og Sjúkraflutningaráðs Landlæknisembættisins mælir landlæknir með því að koktúba með vélindaopi (laryngeal tube sond = LTS) verði tekin upp sem hjálparöndunarvegur í sjúkraflutningum á Íslandi. Um er að ræða einfaldan búnað, sem getur bjargað mannslífum. Hægt er að kenna öllum sjúkraflutningamönnum að nota koktúbu á stuttu námskeiði. Varðandi frekari upplýsingar er vísað til greinargerðar Helgu Magnúsdóttur, formanns endurlífgunarráðs, sem fylgir hér með.

Hjálparöndunarvegur utan sjúkrahúsa. Greinargerð (PDF, 35 KB)

 

Seltjarnarnesi, 27. október 2006
Landlæknir

 

Sent til heilbrigðisstofnana og heilsugæslustöðva, sjúkraflutningaaðila, Sjúkraflutningaskólans, Landssambands slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna, Sjúkraflutningaráðs Landlæknisembættisins og Endurlífgunarráðs Íslands

Uppfært 28. nóvember 2008




Aukaval


Leturstærðir


Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli