Breytingar á bólusetningum 1.1.2007

Dreifibréf Landlæknisembættisins nr. 13/2006
Tilkynning frá sóttvarnalækni

Eins og kynnt var í dreifibréfi í október sl. þá vill sóttvarnalæknir vekja athygli á breytingum á bóluefnum sem notuð verða í almennum bólusetningum hér á landi frá 1.1.2007.

Almennar bólusetningar verða eftirfarandi frá 1.1.2007:  

Aldur

Innihald

Nafn

Framleiðandi

3, 5, 12 mán.

DTaP, Hib, IPV

Infanrix Polio Hib

GSK

6, 8 mán.

MCC

NeisVac-C

Baxter

18 mán., 12 ára

MMR

Priorix

GSK

5 ára

dTaP

Boosterix

GSK

14 ára

dTaP, IPV

Boosterix Polio (ein sprauta)

GSK


1. Vakin er sérstök athygli á því að endurbólusetning gegn kikhósta er nú hafin við 14 ára aldur.
2. Engin bóluefni sem notuð verða innihalda thiomersal (kvikasilfurssambönd).
3. Þar sem að töf hefur orðið á skráningu Boosterix Polio hér á landi er heilsugæslan beðin um að bíða með bólusetningu 14 ára 
    barna þar til seinna á árinu 2007. Að öðrum kosti þarf að nota Boosterix og Imovax Polio í tveimur aðskildum sprautum. 4. Heilsugæslan er beðin um að klára allar eldri birgðir af Pentavac og diTekiBooster áður en nýju bóluefnin verða notuð.
5. Notkun á Diftavax og Imovax Polio í almennum bólusetningum hættir frá og með 1.1.2007 (nema sbr. lið 2 hér að ofan). Notkun
    þessara bóluefna heldur þó áfram hjá fullorðnum og ferðamönnum.
6. Endurútgefin hafa verið bólusetningaskírteini barna og upplýsingabæklingur um bólusetningar fyrir foreldra og aðstandendur.
    Þau má nálgast hjá sóttvaralækni, Landlæknisembættinu.
7. Endurskoðaður hefur verið bæklingur um almennar bólusetningar á Íslandi sem inniheldur m.a. leiðbeiningar um
    bólusetningu einstaklinga með sögu um ófullkomnar bólusetningar. Þessi bæklingur fer ekki í almenna dreifingu en hann má
    prenta út á heimasíðu Landlæknisembættisins (www.landlaeknir.is  undir útgáfa - bæklingar).
8. Parlogis er dreifingaraðili allra ofangreindra bóluefna.

Seltjarnarnesi 21. desember 2006 
 
Sóttvarnalæknir

Sent  til heilsugæslustöðva, heimilislækna í Reykjavík, yfirlækna og hjúkrunarforstjóra sjúkrahúsa, lyfjabúra sjúkrahúsa, Miðstöð heilsuverndar barna, Göngudeild smitsjúkdóma barna Barnaspítala Hringsins. Afrit til Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytisins, Læknablaðsins og tímaritsins Hjúkrun.

Uppfært  28. nóvember 2008




Aukaval


Leturstærðir


Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli