Lýðheilsa í 250 ár - ráðstefna

 250 ára afmæli Landlæknisembættisins. Mynd af Nesstofu
Lýðheilsa í 250 ár – Örráðstefna um lýðheilsumál þjóðar í fortíð, nútíð og framtíð

Miðvikudaginn 3. nóvember 2010 stóð Félag um lýðheilsu fyrir ráðstefnu í Hákólanum í Reykjavík í samstarfi við Landlæknisembættið í tilefni af afmælisári Landlæknisembættisins.

Erindi ráðstefnunnar fjölluðu um ýmsa þætti er tengjast lýðheilsu þjóðarinnar fyrr og nú, svo sem næringu, hreyfingu, áfengis- og vímuefnaneyslu, atvinnu og umhverfi auk annarra áhrifaþátta á heilsu.

Anna Björg Aradóttir, sviðsstjóri hjá Landlæknisembættinu, setti ráðstefnuna og stýrði. Á dagskrá voru eftirtalin erindi.

Hér fyrir neðan er hægt að nálgast meginefni erindanna á glærum sem höfundar sýndu á ráðstefnunni.

Næring og bætiefni (PDF, 2 MB)
Laufey Steingrímsdóttir, doktor í næringarfræði


Hvað vitum við um hreyfingu Íslendinga? (PDF, 3,1 MB)
Kristján Þór Magnússon, doktorsnemi í lýðheilsufræðum


Áfengi og vímuvarnir (PDF, 2,3 MB) 
Kristinn Tómasson, yfirlæknir hjá Vinnueftirlitinu

Atvinna, umhverfi, lýðheilsa
Gísli Marteinn Baldursson borgarfulltrúi


Heilsuefling og forvarnir
Sveinbjörn Kristjánsson, verkefnisstjóri á Lýðheilsustöð

Áhrifaþættir heilsu - viðbrögð stjórnvalda (PDF, 1 MB)
Geir Gunnlaugsson landlæknir

Að erindum framsögumanna loknum fóru fram umræður fundargesta og fyrirlesara. 
Ráðstefnan, sem stóð frá kl. 13–17, þótti takast í alla staði hið besta.


 14. janúar 2010




Aukaval


Leturstærðir


Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli