Bólusetning gegn árlegri inflúensu og pneumókokkum 2010
Dreifibréf Landlæknisembættisins Nr. 4/2010
Tilkynning frá sóttvarnalækni
Efni: Bólusetning gegn inflúensu og pneumókokkum
Þrígild bóluefni gegn inflúensu A og B hafa nú verið framleidd fyrir veturinn 2010─2011 samkvæmt ráðleggingum Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar. Þau innihalda eftirtalda þrjá veirustofna:
- A/California/7/2009 (H1N1)*
- A/Perth/16/2009 (H3N2)
- B/Brisbane/60/2008
* Svínainflúensuveira frá 2009
Í byrjun árs 2007 bauð sóttvarnalæknir út kaup á 60.000 skömmtum af árlegu inflúensubóluefni til fjögurra ára
Um helmingur bóluefnisins kom til landsins um mánaðarmótin ágúst-september og helmingur kom í byrjun október. Heilbrigðisstofnanir og aðrir þar til bærir aðilar geta pantað bóluefni hjá Distica hf. sem annast dreifingu þeirra. Afhending er ókeypis frá seljanda til kaupenda á höfuðborgarsvæðinu,
Sóttvarnalæknir mælist til að eftirtaldir áhættuhópar njóti forgangs við inflúensubólusetningar:
-
Allir einstaklingar 60 ára og eldri.
-
Öll börn og fullorðnir sem þjást af langvinnum hjarta-, lungna-, nýrna- og lifrarsjúkdómum, sykursýki, illkynja sjúkdómum og öðrum ónæmisbælandi sjúkdómum.
-
Barnshafandi konur.
-
Heilbrigðisstarfsmenn sem annast einstaklinga í áhættuhópum sem taldir eru upp hér að ofan.
Sóttvarnalæknir mælist til þess að fyrrgreindir forgangshópar fái bóluefnið sér að kostnaðarlausu. Sóttvarnalæknir greiðir innkaupsverð bóluefnisins samkvæmt reikningi en þeir sem fá bólusetningu þurfa einungis að greiða umsýslukostnað.
Á reikningi til sóttvarnalæknis þarf að koma fram:
-
númer reiknings, nafn stofnunar, fjöldi skammta bóluefnis og einingarverð.
Rafrænt fylgiskjal
-
kennitölum hinna bólusettu, dagsetningu bólusetninga, nafni bóluefnis og hvaða áhættuhópi einstaklingarnir tilheyra.
Rétt er að árétta að bólusetning gegn árlegri inflúensu verndar gegn inflúensu A
Nánari upplýsingar gefur Júlíana Héðinsdóttir aðstoðarmaður sóttvarnalæknis
(juliana@landlaeknir.is) s. 510-1900.
Að gefnu tilefni er minnt á að einstaklinga má bólusetja jafnvel þó inflúensufaraldur sé hafinn því einungis tekur um 1-2 vikur að mynda verndandi mótefni eftir bólusetningu.
Heilbrigðisstofnunum er heimilt að taka komugjald vegna bólusetningarinnar samkvæmt birtri gjaldskrá Heilbrigðisráðuneytisins.
Sóttvarnalæknir vill einnig minna á tilmæli um bólusetningu gegn pneumókokkasýkingum hjá eftirtöldum hópum:
- Einstaklingum 60 ára og eldri, á 10 ára fresti.
- Einstaklingum með aspleniu eða aðra ónæmisbælandi sjúkdóma á 5 ára fresti.
Seltjarnarnesi 19. október 2010
Sóttvarnalæknir
Sent til heilsugæslustöðva, sjálfstætt starfandi lækna,
sviðsstjóra og hjúkrunarforstjóra sjúkrahúsa, lyfjabúra sjúkrahúsa,
og stofnana fyrir aldraða.
Afrit: Heilbrigðisráðuneytið, Lyfjastofnun, Læknablaðið og Tímaritið Hjúkrun.