Starfsleyfi heilbrigðisstétta
Dreifibréf Landlæknisembættisins nr. 3/2010
Efni: Heimild til að starfa sem heilbrigðisstarfsmaður hér á landi.
Að gefnu tilefni vill Landlæknisembættið vekja athygli allra sem átt geta hlut að máli að óheimilt er að starfa sem heilbrigðisstarfsmaður á Íslandi áður en tilskilið starfsleyfi hefur verið gefið út af landlækni og er í gildi.
Undantekningar geta átt við um fólk sem býr í öðru EES-landi og óskar eftir að veita heilbrigðisþjónustu hér á landi tímabundið eða með hléum.
Frá og með 1. apríl 2008 hefur útgáfa starfsleyfa til heilbrigðisstarfsmanna verið á vegum landlæknis. Sá einn hefur rétt til þess að starfa hér á landi sem starfsmaður heilbrigðisstétta sem lokið hefur námi með prófgráðu í einhverri grein heilbrigðisfræði og fengið starfsleyfi frá landlækni á grundvelli hennar. Heilbrigðisstéttir í landinu eru alls 32 og njóta þær lögverndaðs starfsheitis. Nánar er kveðið á um skilyrði fyrir veitingu starfsleyfa í lögum og reglugerðum um heilbrigðisstéttir.
Því vill landlæknir árétta að stofnunum er ekki heimilt að ráða einstakling til starfa sem heilbrigðisstarfsmann nema viðkomandi hafi gilt starfsleyfi á Íslandi og geti framvísað því við ráðningu.
Heilbrigðisstarfsmanni sem hyggst hefja rekstur heilbrigðisþjónustu ber að hafa gilt starfsleyfi hér á landi áður en hann tekur til starfa og hafa fengið staðfest af landlækni að þjónusta sem tilkynnt er teljist uppfylla faglegar lágmarkskröfur.
Landlæknisembættið fer þess á leit við þá sem mennta heilbrigðisstéttir hér á landi að þeir kynni vel fyrir nemendum lög og reglur er varða heilbrigðisstarfsmenn.
Seltjarnarnesi 21. júlí 2010
Landlæknir
Sent til Sjúkratrygginga Íslands, stofnana í heilbrigðisþjónustu,
háskóla, verkmennta- og framhaldsskóla sem mennta heilbrigðisstéttir
og fagfélaga heilbrigðisstétta. Afrit sent til heilbrigðisráðuneytisins.