Lyfjagæðavísar
Í reglugerð nr. 1148/2008 er kveðið á um að landlæknir skuli gefa heilbrigðisstofnunum og heilbrigðisstarfsmönnum fyrirmæli um að nota gæðavísa. Landlæknir skal birta upplýsingar um niðurstöður gæðavísa þannig að þær séu aðgengilegar fyrir notendur, heilbrigðisstofnanir, heilbrigðisstarfsmenn, stjórnendur og stjórnvöld.
Markmið með notkun gæðavísa er að fylgjast með gæðum og öryggi heilbrigðisþjónustunnar og veita heilbrigðisstarfsmönnum aðhald í störfum sínum, auka gæðavitund þeirra og stuðla á þann hátt að umbótum innan heilbrigðisþjónustunnar. Lesa nánar
Lyfjagæðavísar. Flokkun, orðskýringar og skilgreiningar
| Orðskýringar | |
| Öryggi meðferðar | Heildarnotkun ákveðinna lyfja |
| Gagnsemi meðferðar | Ítarefni: |
| Heimildir (doc) | |
| Hagnýt atriði og dæmi varðandi notkun lyfjagæðavísa |
Upplýsingar frá hjúkrunar- og dvalarheimilum
- Lyfjagæðavísar hjúkrunar- og dvalarheimila í árslok 2010 (xls)
Gefnir út í júlí 2011. - Lyfjagæðavísar frá tíu hjúkrunar- og dvalarheimilum, gerðir að frumkvæði heimilanna sjálfra (xls)
Gefnir út í nóvember 2011.
Fyrirvari: Hafa þarf í huga að um lágar tölur er að ræða hjá sumum stofnanna og því eru skekkjumörk hlutfallstalna víð. Hjá stofnunum með fáa heimilismenn hefur hver og einn einstaklingur mikil áhrif á niðurstöðuna. Einnig skal alltaf skoða niðurstöður í ljósi þess að munur milli hjúkrunar-og dvalarheimila getur verið nokkur þegar kemur að sjúkdómatíðni.
Sjá einnig: Tilmæli um verklag við læknisfræðilegar rannsóknir
Frétt um lyfjagæðavísa 15. nóvember 2011
Síðast breytt/uppfært 16. nóvember 2011