Breyting á ungbarnabólusetningum
Dreifibréf Landlæknisembættisins Nr. 1/2010
Tilkynning frá sóttvarnalækni
Efni: Flutningur á 5 ára bólusetningu (Boostrix) til 4 ára aldurs.
Sóttvarnalæknir hefur ákveðið að 5 ára bólusetning með Boostrix (dTaP) skuli nú fara fram við 4 ára aldur.
Heilsugæslan er beðin um að dreifa bólusetningu 4-5 ára barna á 6-12 mánaða tímabil svo ekki skapist vandamál við afgreiðslu bóluefnisins.
Starfsmenn heilsugæslunnar eru jafnframt beðnir um að gera handvirkar leiðréttingar á áður útgefnum bæklingum og skírteinum um bólusetningar.
Seltjarnarnesi, 25. mars 2010
Sóttvarnalæknir
Sent til heilsugæslustöðva
Afrit: Heilbrigðisráðuneytið, Læknablaðið og Tímaritið Hjúkrun