Leiðbeiningar fyrir heimilisfólk

Sýkingar af völdum nýrrar inflúensu A(H1N1)v veiru
Leiðbeiningar fyrir heimilisfólk


Inflúensa smitast auðveldlega milli manna á heimilum og erfitt að koma í veg fyrir það með notkun hlífðarbúnaðar. Þess vegna er ekki mælt með að heimilisfólk veikra í heimahúsi noti hlífðarbúnað.


Umönnun sjúkra og sýkingavarnir

  • Mælt er með að einstaklingar sem eru með grunaða eða staðfesta inflúensu séu heima í 2 daga eftir að þeir verða hitalausir.
  • Takmarkið samneyti við inflúensusjúkling eins og unnt er, t.d. með því að halda u.þ.b. eins metra fjarlægð frá honum eða vera ekki í sama herbergi.
  • Hafið umönnun hans að mestu í höndum sama aðila. Ef einhver nákominn aðili hefur náð sér af inflúensunni er best að hann annist þann sjúka.
  • Hafið poka hjá inflúensusjúklingum fyrir notaðar bréfþurrkur. Pokanum skal síðan lokað og hent í sorptunnu ásamt öðru heimilissorpi.
  • Þvoið hendur oft og vel eða hreinsið þær með handspritti.
  • Þrífið vel með sápuvatni, einkum sameiginleg rými og staði sem allir á heimilinu snerta, t.d. borðplötur, handfang á kæliskáp, hurðarhúna o.s.frv.
  • Forðist beina snertingu við líkamsvessa (slím úr öndunarvegi, hægðir, uppköst, blóð). Ef snerting verður skal hreinsa hendurnar (með þvotti eða handspritti) strax á eftir.
  • Hafið góða loftræstingu (glugga opna), einnig í sameiginlegu rými, s.s. í eldhúsi og baðherbergi.
  • Ef þörf er á nýju mati læknis eða hjúkrunarfræðings skal hringja í heilsugæslu/Læknavaktina og fá ráðleggingar.

 

Annað heimilisfólk og fólk sem er útsett fyrir smit

  • Ekki er þörf á að rannsaka frískt fólk án einkenna.
  • Hafið samband við næstu heilsugæslustöð ef alvarlegra einkenna inflúensu verður vart.
  • Ekki er mælt með fyrirbyggjandi notkun veirulyfja.
  • Fylgist með leiðbeiningum sóttvarnalæknis í fjölmiðlum og á www.influensa.is

 

Uppfært 2. nóvember 2009




Aukaval


Leturstærðir


Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli