Rekstraraðilaskrá

Ábyrgðaraðili: Landlæknir

Vinnsluaðili: Landlæknir

Tilgangur: Að halda skrá yfir rekstraraðila í heilbrigðisþjónustu þannig að tilteknar upplýsingar um alla rekstraraðila í heilbrigðisþjónustu á Íslandi séu tiltækar á einum stað.

Innihald: Gögn um rekstraraðila í heilbrigðisþjónustu á Íslandi. Rekstraraðilar eru einstaklingar og stofnanir, sem uppfylla ákveðnar faglegar lágmarkskröfur og hafa fengið það staðfest af landlækni.

Form: Rafræn skrá með upplýsingum um alla aðila sem störfuðu sem rekstraraðilar í heilbrigðisþjónustu áður en lög nr. 41/2007 um landlækni tóku gildi. Auk þess upplýsingar um þá aðila sem síðan hafa tilkynnt fyrirhugaðan rekstur heilbrigðisþjónustu til landlæknis og fengið staðfest af landlækni að þeir teljist uppfylla ákveðnar faglegar lágmarkskröfur  Skráin er uppfærð í rauntíma þegar ný gögn berast landlækni.

Uppruni gagna: Gögn frá Landlæknisembættinu og rekstraraðilum. Frá og með 1. september 2007 þegar lög um landlækni tóku gildi hefur rekstraraðilum verið skylt að tilkynna fyrirhugaðan rekstur heilbrigðisþjónustu og breytingar á rekstri  til landlæknis.

Skráningaratriði: Einkvæm auðkennisnúmer, heiti og kennitölur rekstraraðila og ábyrgðarmanns, staðsetning þjónustu, tegund þjónustu, starfssvið og dagsetningar tilkynningar, staðfestingar, breytinga og hvenær starfsemi var lögð niður ef við á.

Hver rekstraaðili getur haft fleiri en eitt auðkennisnúmer ef hann starfar á eigin vegum á fleiri en einum stað.  Þetta getur t.d. átt við um sérfræðilækna með eigin rekstur sem veita heilbrigðisþjónustu á fleiri en einum þjónustustað.

Úrvinnsla og birting: Ákveðnar upplýsingar úr rekstraraðilaskrá eru birtar á vefsíðu landlæknis. Skráin er uppfærð reglulega. Heilbrigðisstofnanir og aðrir rekstraraðilar innan heilbrigðisþjónustu sem vilja hagnýta skránna á rafrænu formi geta fengið hana senda rafrænt.

Saga: Skrá yfir stofnanir og heilbrigðisstarfsmenn hefur verið haldin hjá Landlæknisembættinu frá árinu 1998. Rekstraraðilaskrá byggir á þeim skrám auk frekari upplýsinga sem Landlæknisembættið hefur safnað og kom í fyrsta sinn út í júní 2009.

Uppfært 8. júlí 2010

Rekstraraðilaskrá

Rekstraraðilaskrá



Aukaval


Leturstærðir


Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli