ICD-10 2011
ICD-10. Uppfærsla 2011
ICD-10, útgáfa 2011, samanstendur af 14,595 kóðum og voru 6 kóðar gerðir óvirkir nú en engir nýir bættust við.
Uppfærslur flokkunarkerfisins ICD-10 fylgja fyrirmælum frá Alþjóðaheilbrigðismálastofnuninni. Útgáfa ICD-10 2011 er með mun minni breytingum en á árinu 2010 og sjást þær vel í samantekt yfir breytingar í skrám.
ICD-10 er nú í þriðja sinn gefið út rafrænt, á íslensku og ensku með öllum tilheyrandi skýringartextum. Því er útgáfan á þrenns konar formi, styttri útgáfa á excel-formi, sem eins og áður hefur aðeins heiti kóða, lengri útgáfa á excel-formi með skýringartextum og loks gagnagrunnsform með skráarlýsingu til birtingar í hugbúnaði heilbrigðisstofnana.
Samantekt yfir breytingar er að finna í excel-skránum, nýja kóða og ógilta, auk nýrra þýðinga. Þýðingum nýrra kóða er ekki að fullu lokið en fyrir nýja kóða er enski textinn tæmandi.
Rétt er að minna á að í fyrirmælum landlæknis um lágmarksskráningu í heilbrigðisþjónustu er mælt fyrir um að rafrænt birtingarform flokkunarkerfa sýni skýringar til að styðja rétta skráningu.
Uppfært 6. janúar 2011