Kláðamaur

Hvað er kláðamaur?
Kláðamaur (scabies) er sníkjudýr sem lifir í húð manna. Þetta er algengur húðsjúkdómur um
allan heim sem getur smitast við kynmök.

Hvernig smitar maurinn?
Kláðamaur smitar við nána snertingu en einnig á annan hátt, svo sem ef sofið er í rúmi smitaðs
einstaklings þar sem ekki hefur verið skipt um rúmföt eða notuð eru sömu handklæði. Afar
ólíklegt er að smit geti átt sér stað þótt smitaður einstaklingur heilsi með handabandi, en ef
haldist er lengi í hendur og húðin er heit og þvöl kemur maurinn fram á yfirborðið og getur
smitað. Smit á klósettsetum er afar ólíklegt. Maurinn getur lifað tvo til þrjá sólarhringa utan
líkamans. Það tekur fjórar til sex vikur frá smitun þar til einkenni koma í ljós, hafi viðkomandi
aldrei fengið kláðamaur, en hafi hann fengið kláðamaur áður geta einkenni komið fram eftir
fáeina daga.

Hver eru einkenni af völdum kláðamaurs?
Kláðamaurinn veldur útbrotum og kláða. Útbrotin koma gjarnan á þá staði líkamans þar sem
maurinn kann best við sig; milli fingra, á úlnliðum, í mittinu, á baki og kringum kynfærin. Afar
óvenjulegt er að maurinn komi í andlit. Kláðinn er oft mestur á nóttinni undir hlýrri sæng.

Er hægt að fá meðferð við kláðamaur?
Meðferðin felst í því að smyrja allan líkamann (nema andlit og hársvörð) með áburði sem
drepur maurinn. Áburðinn er hægt að kaupa án lyfseðils í lyfjaverslunum og leiðbeiningar
fylgja í pakkanum.

Bólfélagi og fjölskyldumeðlimir verða að fá meðferð samtímis svo smitun eigi sér ekki stað
að nýju. Sængurfatnaður og föt eru þvegin á venjulegan hátt. Kláðinn getur haldið áfram í
nokkrar vikur eftir að meðferð lýkur þótt maurinn sjálfur sé horfinn.

Vefsett 11. mars 2009




Aukaval


Leturstærðir


Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli