Heimaþjónusta ljósmæðra
Faglegar leiðbeiningar fyrir heimaþjónustu ljósmæðra (PDF)
Febrúar 2009
Höfundur er Hildur Sigurðardóttir, lektor við Háskóla Íslands.
Auk hennar störfuðu í vinnuhópi um gerð leiðbeininganna ljósmæðurnar Hildur Kristjánsdóttir, Berglind Hálfdánsdóttir, Guðrún Guðmundsdóttir og Unnur Berglind Friðriksdóttir auk Önnu Bjargar Aradóttur, yfirhjúkrunarfræðings hjá Landlæknisembættinu.
Tilgangur leiðbeininganna er að samræma fagleg viðmið um heimaþjónustu ljósmæðra til sængurkvenna, byggð á gagnreyndri þekkingu, í því augnamiði að tryggja gæði þjónustunnar og öryggi skjólstæðinganna. Leiðbeiningarnar eru settar fram með það í huga að stuðla að upplýstu vali móður/foreldra um þjónustu í sængurlegu.
Ljósmæðrum í heimaþjónustu ber að kynna sér þessar leiðbeiningar og nýta sér þær í samstarfi við þær konur og fjölskyldur sem þær annast.
Gerð leiðbeininganna er samstarfsverkefni Landlæknisembættisins og Ljósmæðrafélags Íslands.
Sjá skylt efni á þessum vef: Mæðravernd - meðgönguvernd
Vefsett 4. mars 2009