Yfirlit um óvænt atvik í heilbrigðisþjónustu

Dreifibréf Landlæknisembættisins nr. 5/2009


Efni: Yfirlit um óvænt atvik í heilbrigðisþjónustu kölluð inn í fyrsta skipti

Vakin er athygli á því að 1. mars 2009 er fyrsti skiladagur fyrir yfirlit um óvænt atvik í heilbrigðisþjónustu. Samkvæmt lögum um landlækni nr. 41/2007 eiga heilbrigðisstofnanir, sjálfstætt starfandi heilbrigðisstarfsmenn og aðrir sem veita heilbrigðisþjónustu að senda landlækni yfirlit um öll óvænt atvik, annars vegar um atvik sem starfsmaður heilbrigðisþjónustu verður fyrir og hins vegar um atvik sem notendur þjónustunnar verða fyrir.

Yfirlitunum skal skilað tvisvar á ári, 1. mars og 1. september. Samkvæmt dreifibréfi Landlæknisembættisins nr. 2/2008 frá 15. febrúar 2008 var ákveðið að yfirlit yrðu kölluð inn í fyrsta skipti þann 1. mars 2009, fyrir seinni helming ársins 2008. Í yfirlitinu skal koma fram tegund stofnunar/starfsemi; hvort um var að ræða sjúkling eða starfsmann; hvers konar atvik er um að ræða, afleiðingar atviks og lýsing á umbótum í kjölfar alvarlegra atvika og síendurtekinna atvika. Embættið hefur útbúið tvenns konar eyðublöð fyrir þessi yfirlit og er þau að finna á vefsetri Landlæknisembættisins /Pages/1055?NewsID=1874.

Landlæknisembættið telur mikilvægt að þessum upplýsingum sé skilað inn og að þær séu nýttar í þeim tilgangi að efla gæði í þjónustunni.


Seltjarnarnesi, 3. mars 2009
Landlæknir

 




Aukaval


Leturstærðir


Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli