Rafræn sjúkraskrárkerfi
Víða í heilbrigðisþjónustunni er unnið með gögn skjólstæðinga hennar á rafrænu formi og eru þá skráðir ýmsir þættir sjúkraskrárinnar með flokkunarkerfum Landlæknisembættisins. Flokkunarkerfin eru þá innlimuð í hugbúnað þjónustuaðila til birtingar. Í gildandi útgáfum af fyrirmælum um sjúkraskrár í heilbrigðisþjónustu er kveðið á um birtingarform flokkunarkerfa, að þau sýni efni þeirra með fullri nákvæmni, tilheyrandi skýringartextum og milli- eða frávísunum eftir því sem við á.
Þróun vefbirtingar flokkunarkerfa á www.skafl.is
Vefurinn www.skafl.is er þróaður af Landlæknisembættinu til að veita starfsfólki í heilbrigðiskerfinu aðgang að þeim flokkunarkerfum sem skv. fyrirmælum embættisins skal nota til að skrá heilsufarsupplýsingar á Íslandi. Á vefnum er hægt að leita að kóðum eftir tré eða með því að slá inn leitarorð. Öll heiti og skýringartextar birtast bæði á ensku og íslensku. Sjá nánar á leiðbeiningasíðu.
Vefurinn byggir á vinnu sem unnin hefur verið hjá embættinu á síðustu árum varðandi skipulag og viðhald flokkunarkerfa.
Næstu skref í þróun verða:
1. Vefur opnaður úr öðru kerfi
Vefurinn er ekki eingöngu hugsaður sem sjálfstæð lausn. Við næstu uppfærslu verður eftirfarandi virkni bætt við:
Birta upplýsingar um kóða
Að ræsa vefinn með leitarskilyrðum,sem nýtist t.d. þegar kóði er birtur í einhverju ytra kerfi og notandinn vill fá nánari upplýsingar um viðkomandi kóða . Þá er hægt að senda kóða og flokkunarkerfi inn sem breytur þegar vefurinn er ræstur og opnast þá vefurinn sjálfkrafa á þeim kóða sem skoða átti.
skafl.is sem kóðaleit
Með því að ræsa vefinn með sérstakri breytu er hægt að nota hann sem kóðaleit í öðrum kerfum. Vefurinn leyfir þá að notandinn velji sér kóða, einn eða fleiri, sem ytra kerfið getur nálgast með sérstöku vefkalli á XML formi þegar notandinn hefur lokið verki sínu. Ytra kerfið getur takmarkað í hvaða flokkunarkerfum leitað er með breytu.
2. Vefþjónustur fyrir kóðaleit
Fyrir þá sem vilja nýta sér þær upplýsingar sem til eru á skafl.is en vilja stýra notendaviðmóti sjálfir er hægt að notast við eftirfarandi vefþjónustur:
Kóðaleit
Inntak: Leitarstrengur; eitt eða fleiri flokkunarkerfi.
Úttak: Listi yfir kóða sem uppfylla leitarskilyrði.
Kóðatré
Inntak: Kóði fyrir eitt kóðatré; breyta sem segir til um hvort skila eigi öllu trénu eða eingöngu næsta lagi, rótarkóði (annað hvort raunverulegur rótarkóði eða ákveðinn kóði sem sækja á undirtré fyrir).
Úttak: Kóðatré, allt eða að hluta.
Kóðaupplýsingar
Inntak: Innri kóði.
Úttak: Allar upplýsingar um viðkomandi kóða
Bent er á verkefnisstjóra flokkunarkerfa til að fá nánari upplýsingar og eru allir sem eru ábyrgir fyrir uppfærslum flokkunarkerfa í sjúkraskrárhugbúnaði hvattir til að skrá sig á póstlista flokkunarkerfa til að þeim berist tilkynningar um uppfærslur flokkunarkerfa.
Síðast breytt/uppfært 7. janúar 2011