Klínískar leiðbeiningar
Klamýdía
Markmið með gerð leiðbeininganna er að draga úr því heilsufarsvandamáli sem klamýdía og fylgikvillar hennar er. Með því að heilbrigðisstarfsfólk sé vel á verði og ráðleggi sýnatökur til að greina klamýdíu er vonast til að fækka megi klamýdíu-tilfellum þegar fram í sækir. Til sýklafræðideildar Landspítalans bárust 14594 sýni árið 2007 og voru 1731 þeirra jákvæð eða 11,9%. Þrátt fyrir aukinn sýnafjölda helst hlutfall jákvæðra svipað á milli ára.
Klamýdíusýkingar eftir mánuði og ári, 1997-2008 (Tölur frá sóttvarnalækni á þessum vef)
Vinnuhópinn skipuðu: Jón Hjaltalín Ólafsson, Ólafur Steingrímsson, Rannveig Einarsdóttir, Reynir Tómas Geirsson, Sigurður Helgason og Steingrímur Davíðsson
Við vinnu þessa var stuðst við gæðastaðla um gerð leiðbeininga en í meginatriðum var farið eftir leiðbeiningum unnum af Scottish Intercollegiate Guideline Network (SIGN), Management of genital Chlamydia trachomatis infection, sem gefnar voru út í mars árið 2000. Þær leiðbeiningar eru „evidence based“ og tengja einstaka ráðleggingar við þann vísindalega grunn sem að baki liggur. Sjá A guide to guideline methodology (pdf) , SIGN leiðbeiningar nr. 50 frá janúar 2008.
Ráðleggingarnar eru beint tengdar þeim vísindalega grunni sem að baki liggur, sé þess nokkur kostur og til þess eru notaðir bókstafirnir A, B eða C. Þetta tengist ekki því hversu mikilvæg ráðleggingin er. Flokkunin var nýverið endurbætt og verður notuð framvegis. Sjá "revised method of grading guideline recommendations" Í leiðbeiningum um klamýdíu standa bókstafirnir A,B og C fyrir eftirfarandi:
- A: ráðlegging er studd sterkum rannsóknum (kerfisbundin yfirlit, metaanalýsur, eða a.m.k einni vel gerðri tvíblindri, slembaðri rannsókn.
- B: að baki ráðleggingar eru vel gerðar klínískar rannsóknir þótt ekki sé um tvíblinda rannsókn að ræða.
- C: að baki ráðleggingar er samráðsálit sérfræðinga / faghópa.
![]() |
![]() |
| Íslenskar leiðbeiningar um meðferð klamydiu |
Leiðbeiningar frá SIGN um meðferð klamydíu, gefnar út í mars 2009 |
Eins og fram kemur í leiðbeiningunum er mjög mikilvægt að rekja smit og er það á ábyrgð læknis að það sé gert rétt. Sjá Sóttvarnalög nr. 19, frá 17. apríl 1997.
Hvatt er til tækifærisskimunar (opportunistic screening) hjá einstaklingum í aukinni hættu á að hafa einkennalausa klamýdíu auk þess sem lögð er áhersla á að tekin séu sýni hjá þeim sem hafa einkenni sem gætu verið vegna klamýdíu.
Sýnataka er einföld og er vísað í leiðbeiningar um sýnatökur á heimasíðu sýklafræðideildar Landspítala háskólasjúkrahúss. Yfirleitt eru ekki tekin sýni til að kanna hvort meðferð hafi upprætt sýkingu nema ef einkenni haldast eða koma aftur og ef sjúklingur hefur ekki tekið lyfin eða hætta er á endursýkingu. Ekki ráðlagt að taka sýni til staðfestingar á lækningu fyrr en a.m.k. 3 vikum eftir að meðferð lýkur til þess að forðast falskt jákvæða greiningu vegna dauðra baktería.
Stýrihópur um klínískar leiðbeiningar leggur til að vitnað sé til
þessara leiðbeininga á eftirfarandi hátt:
Ólafsson JH, Steingrímsson Ó, Einarsdóttir R, Geirsson RT, Sigurður Helgason S, Davíðsson S. Kynsjúkdómar. Meðferð, greining og eftirlit við klamydíu. Samantekt ráðlegginga. Klínískar leiðbeiningar. Landlæknisembættið, 2001. (Skoðað dd.mán ár). Sótt á: http://landlaeknir.is/pages/138
Texti úr Handbók um sýnatökur:
Sýnatökur til leitar að klamýdíu
Leghálssýni (konur)
Notað Amplicor flutningsæti, fæst á sýklafræðideild.
1. Fjarlægið slím af leghálsi með öðrum af 2 stórum pinnum sem fylgja með í pakkanum með flutningsætinu.
2. Stingið hinum pinnanum inn í leghálsinn þar til endinn sést ekki lengur. Snúið pinnanum í 3-5 sekúndur. Gætið þess að pinninn snerti ekki leggangaslímhúð þegar hann er fjarlægður.
3. Setjið pinnann í glasið með flutningsætinu og hrærið í 15 sekúndur.
4. Pressið vökvann úr pinnanum með því að þrýsta honum að vegg glassins. Ef slím er í sýninu skal veiða það á pinnann og þrýsta honum aftur að glasveggnum.
Áríðandi: Fjarlægið pinnann með því slími sem á honum er.
Leggangasýni (konur). Notað Amplicor flutningsæti, fæst á Sýklafræðideild.
Rannsóknir hafa sýnt að sýni frá leggöngum og leggangaopi eru heppileg til leitar að Klamydíu með PCR aðferðum. Læknir getur þá framkvæmt sýnatökuna eða látið konuna sjálfa taka sýnið. Pinna er þá strokið við leggangavegginn í 3-5 sekúndur og hann færður yfir í flutningsætið á sama hátt og leghálssýni.
Áríðandi: Fjarlægið pinnann með því slími sem á honum er.
Þvagsýni (karlar og konur)
Þvagsýni eru betri en þvagrásarstrok til leitar að Klamýdíu hjá körlum og álíka góð og leghálsstrok hjá konum.
1. Sjúklingurinn má ekki hafa kastað af sér þvagi í 2 klukkustundir fyrir sýnatöku.
2. Látið sjúklinginn kasta af sér 10 til 50 ml af fyrsta þvagi (ekki miðbunuþvagi) í þvagprufuglas.
3. Æskilegt er að senda þvagsýni til leitar að Klamydíu í 10 ml plastglösum með skrúfuðu loki (t.d. Monovette frá Sarsted) og senda annað sýni og beiðni fyrir almenna ræktun sé hennar óskað.
Augnstrok
Notað Amplicor flutningsæti, fæst á sýklafræðideild.
Notið pinna úr sýnatökusetti til að taka strok frá slímhúð augans. Ekki skal taka strok úr greftri.
Hristið pinnan út í flutningsætið í 15 sekúndur og pressið síðan mesta vökvann úr honum við veggi glassins og hendið síðan pinnanum.
Próf til athugunar á lækningu
Yfirleitt eru ekki tekin sýni til að kanna hvort meðferð hafi upprætt sýkingu nema ef einkenni viðhaldast eða koma aftur og ef sjúklingur hefur ekki tekið lyfin eða er í áhættu fyrir endursýkingu. Sumir sjúklingar, sérstaklega þeir sem hafa verið með einkennalausa sýkingu gætu óskað eftir prófi til staðfestingar á upprætingu sýkingar. Í þessu sambandi ber að hafa í huga að greiningarprófið greinir jafnt lifandi sem dauðar bakteríur og því er ekki ráðlagt að taka sýni til staðfestingar á lækningu fyrr en a.m.k. 3 vikum eftir að meðferð lýkur til þess að forðast falskt jákvæða greiningu vegna dauðra baktería.
Flutningur til rannsóknastofu og geymsla sýna
Merkið sýnið og sendið á sýklafræðideild ásamt vel útfylltum beiðnum. Ef flutningur tekur innan við 24 klst., má senda þvagsýni ókæld annars má geyma þvagsýni í kæli í 4 daga. Dragist rannsókn lengur skal frysta sýnið (-20°C). Strok má geyma í 10 daga við stofuhita. Ef rannsókn stroka dregst lengur en 10 daga skal frysta sýnið (-20°C). Ef þvagsýni hefur verið geymt við stofuhita í meira en 24 klst, og strok lengur en 10 daga eru það ónothæft og nauðsynlegt að taka nýtt sýni.
Hagnýtar vefslóðir:
Sýklafræðideild Landspítala
Sóttvarnalög
Síðast breytt/uppfært 1. desember 2009
Leitarvélin
- ADHD - Vinnulag við greiningu og meðferð
- Astmi
- Áfengismeðferð í heilsugæslu
- Átraskanir
- Bakverkir
- Beinþynning
- Beinþynning af völdum sykurstera
- Benzódíazepín-lyf
- Bláæðasegasjúkdómar - LSH
- Bláæðasegasjúkdómar - flæðiskema - LSH
- Blóðgjöf - Meðferð með rauðkornaþykkni - LSH
- Blóðþrýstingsmælingar
- Byltuvarnir - LSH
- Endurlífgun
- Eyrnabólga - bráð miðeyrnabólga
- Fólasín - Forvarnir á meðgöngu
- Hálsbólga
- Heilabilun - Greining og meðferð.
- Heilablóðfall. Næringar- og vökvavandi - Nýtt - LSH
- Heila- og mænusigg (MS)
- Hiti og kyrningafæð - LSH
- Hjarta- og æðasjúkdómar
- Áhættumat og forvarnir hjarta- og æðasjúkdóma
- Brjóstverkir - LSH
- Brjóstverkir: Skema um móttöku- LSH
- Gáttatif
- Háþrýstingur hjá öldruðum
- Hjartabilun
- Hjartabilun - BNP/NT-proBNP mæling
- Hjartaþelsbólga - Sýklalyfjagjöf - LSH
- Hormónameðferð við tíðahvörf
- Húðflúr og húðgötun
- Höfuðáverkar - LSH
- Klamýdía
- Krabbameinsverkir - Meðferð - LSH
- Kæfisvefn - LSH
- Langvinn lungnateppa
- Langvinnur nýrnasjúkdómur
- Lifrarbólga C - LSH
- Líknarmeðferð - LSH
- Lungnaháþrýstingur - LSH - Nýtt
- Meðferð með ytri öndunarvél við bráðri öndunarbilun - LSH
- Meðgönguvernd
- Meðgöngusykursýki - LSH
- Meltingarónot
- Mjaðmarbrot
- Myndgreining
- Neyðargetnaðarvörn
- Næring sjúklinga - LSH
- Offita barna
- Ofkæling - Leiðbeiningar um fyrstu meðferð
- Ofnæmislost
- Rannsóknir
- Amíódarónmeðferð - Venjubundið eftirlit
- Blóðræktanir - Verklag - LSH
- Blóðsölt og nýrnastarfsemi. Mælingar
- Lifrarfrumu- og gallstíflublóðpróf - Verklag
- Litíummeðferð - Venjubundið eftirlit
- Skjaldkirtilspróf. Verklag við greiningu og eftirlit
- Reykingar - Meðferð við reykingum
- Ristilkrabbamein
- Segavarnir við skurðaðgerðir - FSA
- Sjálfsvígshætta - flæðiskema - LSH
- Sjálfsvígstilraunir - LSH
- Skert ökuhæfni vegna sjúkdóms eða öldrunar
- S-merkt lyf - LSH
- Sóragigt - LSH
- Stunguóhöpp - LSH
- Súrefnismeðferð - LSH
- Sykursýki af tegund 2
- Tannvernd
- Tölvusneiðmyndir af kransæðum - Ábendingar um notkun
- Varnandi sýklalyfjagjöf - LSH
- Þrýstingssár - LSH
- Þunglyndi og kvíði - LSH
- Þvagfærasýkingar - greining og meðferð utan sjúkrahúsa
- Þvagfærasýkingar kvenna sem ekki eru barnshafandi
- Þvagfærasýkingar barnshafandi kvenna
- Þvagfærasýkingar einstaklinga með þvaglegg
- Þvagfærasýkingar karla
- Þvagleki - Meðhöndlun í heilsugæslu
- Leiðbeiningar í vinnslu

