Handbók um ung- og smábarnavernd
Dreifibréf Landlæknisembættisins nr. 11/2008
Efni: Handbók um ung- og smábarnavernd – endurskoðun.
Eins og fram hefur komið í bréfum Landlæknisembættisins frá 25. júní 2007 og 14. janúar 2008 hefur embættið unnið að endurskoðun á Handbók í ung- og smábarnavernd sem var gefin út árið 1996. Embættið hefur fagráð á sviði ung- og smábarnaverndar og hefur það veitt ráðgjöf við endurskoðunina. Ritstjórar eru Anna Björg Aradóttir, yfirhjúkrunarfræðingur við landlæknisembættið, Sesselja Guðmundsdóttir, sviðsstjóri Ung- og smábarnasviðs og Geir Gunnlaugsson forstöðumaður Miðstöðvar heilsuverndar barna. Fjölmargir hafa komið að gerð og endurskoðun efnisins og eru þeim færðar þakkir fyrir.
Drög að endurskoðaðri handbók ásamt verkáætlun um hvernig staðið verður að breytingunum verður sett á vefsetur Landlæknisembættisins 6. október nk. til umsagnar. Lagt er til að breytt fyrirkomulag ung- og smábarnaverndar taki gildi 1. janúar 2009. Til undirbúnings þess er boðað til umræðufundar fyrir starfsfólk heilsugæslustöðva í Hringsal Landspítala, mánudaginn 10. nóvember 2008, kl. 9.00-12.00, til að fá fram álit og skoðanir á endurskoðun handbókarinnar. Þeir sem óska eftir að fá að tengjast fjarfundabúnaði eru beðnir um að hafa samband við brúarstjóra Landspítalans: bruarstjori@landspitali.is.
Einnig er vakin athygli á fyrirlestri Dr. Frances Page Glascoe, prófessors á barnadeild Vanderbilt háskólans í Bandaríkjunum, í Hringsal Barnaspítalans miðvikudaginn 8. október kl. 08:15-09:00 sem hún nefnir: PEDS and BRIGANCE: New Tools for Detecting Developmental-Behavioral Problems of Young Children in Iceland. Þar gefst öllu áhugafólki um málefnið tækifæri á að kynnast betur bakgrunni og rannsóknum á þessum vinnuferlum sem lagt er til að verði teknir upp við skoðun 2½ og 4 ára barna í stað skoðana við 3½ og 5 ára aldur.
Ritstjórn handbókarinnar vonast til að sem flestir gefi sér tíma til að fara yfir handbókina og koma með ábendingar um það sem betur má fara. Tekið skal fram að eftir er að prófarkalesa bókina og hanna útlit hennar. Handbókin mun verða gefin út í möppu eins og nýlegar leiðbeiningar um meðgönguvernd, en verður einnig aðgengileg á vefsetri Landlæknisembættisins.
Seltjarnarnesi, 25. september 2008
Landlæknir
Sent heilsugæslustöðvum,
framkvæmdastjórum hjúkrunar og yfirhjúkrunarfræðingum,
framkvæmdastjórum lækninga og yfirlæknum.
Uppfært 28. nóvember 2008