Bólusetning gegn inflúensu 2008
Tilkynning frá sóttvarnalækni
Þrígild bóluefni gegn inflúensu A og B hafa nú verið framleidd fyrir veturinn 2008-2009 samkvæmt ráðleggingum Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar. Þau innihalda eftirtalda stofna:
- A/Brisbane/59/2007 (H1N1);
- A/Brisbane/10/2007 (H3N2);
- B/Florida/4/2006.
Í byrjun árs 2007 bauð sóttvarnalæknir út kaup á 60.000 skömmtum af árlegu inflúensubóluefni til næstu fjögurra ára
Áætlað er að bóluefnin verði komin til landsins í lok september nk. og geta heilbrigðisstofnanir og aðrir þar til bærir aðilar pantað bóluefni hjá Parlogis hf. sem annast dreifingu þeirra. Afhending er ókeypis frá seljanda til kaupenda á höfuðborgarsvæðinu,
kr. 707,23 m. vsk.
Sóttvarnalæknir mælist til að eftirtaldir áhættuhópar njóti forgangs við inflúensubólusetningar:
- Allir einstaklingar 60 ára og eldri.
- Öll börn og fullorðnir sem þjást af langvinnum hjarta-, lungna-, nýrna- og lifrarsjúkdómum, sykursýki, illkynja sjúkdómum og öðrum ónæmisbælandi sjúkdómum.
- Heilbrigðisstarfsmenn sem annast einstaklinga í áhættuhópum sem taldir eru upp hér að ofan.
- númer reiknings, nafn stofnunar, fjöldi skammta bóluefnis og einingarverð.
Rafrænt fylgiskjal
-
kennitölum hinna bólusettu, dagsetningu bólusetninga, nafni bóluefnis og hvaða áhættuhópi einstaklingarnir tilheyra.
(juliana@landlaeknir.is) s. 510-1900. Að gefnu tilefni er minnt á að einstaklinga má bólusetja jafnvel þó inflúensufaraldur sé hafinn því einungis tekur um 1-2 vikur að mynda verndandi mótefni eftir bólusetningu.
Heilbrigðisstofnunum er heimilt að taka komugjald vegna bólusetningarinnar samkvæmt birtri gjaldskrá Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytisins.
Sóttvarnalæknir vill einnig minna á tilmæli um bólusetningu gegn pneumókokkasýkingum
hjá eftirtöldum hópum:
-
Einstaklingum 60 ára og eldri, á 10 ára fresti.
- Einstaklingum með aspleniu eða aðra ónæmisbælandi sjúkdóma á 5 ára fresti.
Seltjarnarnesi, 25. ágúst 2008
Sóttvarnalæknir
Sent til heilsugæslustöðva, heimilislækna í Reykjavík,
sviðsstjóra og hjúkrunarforstjóra sjúkrahúsa, lyfjabúra sjúkrahúsa,
læknastofa og stofnana fyrir aldraða.
Afrit til Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytisins, Lyfjastofnunar, Læknablaðsins og Tímaritsins Hjúkrun.Uppfært 28. nóvember 2008