Áherslur í heilbrigðisþjónustu á hjúkrunarheimilum

Dreifibréf Landlæknisembættisins nr. 7/2008

Efni: Áherslur í heilbrigðisþjónustu á hjúkrunarheimilum

Ákveðinn hópur aldraðra ver síðustu æviárum sínum á hjúkrunarheimilum og því er mikilvægt að þessir einstaklingar og aðstandendur þeirra hafi aðgang að upplýsingum um aðbúnað og þjónustu á hjúkrunarheimilum. Gæðaráð Landlæknisembættisins í öldrunarhjúkrun hefur sett fram viðmið varðandi þjónustu á hjúkrunarheimilum sem eru í samræmi við lög um málefni aldraðra nr. 125/1999. Þau hafa verið gefin út undir heitinu Áherslur í heilbrigðisþjónustu á hjúkrunarheimilum.

Mikið álag er fyrir aldraðan einstakling að flytja á hjúkrunarheimili, þó það geti um leið verið viss léttir. Góðan tíma þarf til að aðlagast breyttum aðstæðum, taka á móti upplýsingum um heimilishagi, kynnast umönnunaraðilum og öðrum íbúum. Taka þarf tillit til annarra eins og á hverju öðru heimili og því mikilvægt að íbúar komi óskum sínum á framfæri og taki þátt í að móta heimilisbraginn. Meginmarkmið þjónustunnar er að styðja við íbúa og stuðla að velferð þeirra í hvívetna þrátt fyrir sjúkdóma og fötlun.

Landlæknisembættið vonar að þetta rit komi þeim sem reka hjúkrunarheimili að gagni við gæðaþróun heilbrigðisþjónustunnar á heimilunum. Einnig er ritið gagnlegt fyrir þá sem búa á eða eru að sækja um vist á hjúkrunarheimili og aðstandendur þeirra.

Ritið verður aðeins gefið út á rafrænu formi og má nálgast það á vefsetri Landlæknisembættisins, www.landlaeknir.is

Seltjarnarnesi, 3. júlí 2008
Landlæknir

Sent hjúkrunar- og dvalarheimilum aldraðra

 Uppfært 28. nóvember 2008




Aukaval


Leturstærðir


Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli