Aðgengi að kynsjúkdómaprófunum
A-1, Göngudeild húð- og kynsjúkdóma, Landspítala Fossvogi
A-1, Göngudeild húð- og kynsjúkdóma, Landspítala Fossvogi
Allir landsmenn geta hringt til göngudeildarinnar milli kl. 8:15–15:00 alla virka daga í síma 543-6050 og pantað þar tíma. Árið 2007 voru 8.854 komur á deildina (7.500 einstaklingar og þar af rúmlega 2.200 nýir sjúklingar). Læknar, deildarlæknar og húð- og kynsjúkdómalæknar, eru á vakt alla virka daga. Þeir taka á móti fólki til kl. 14:00 og hjúkrunarfræðingar taka á móti fólki til kl. 15:30. Ekki er boðið upp á bráðamóttöku nema ef hjúkrunarfræðingar meta málið mjög brátt en þá er reynt að koma þeim að hjá lækni eða setja í annan farveg. Oftast er um 2–7 daga bið eftir skoðun hjá lækni vegna mikils álags sem er breytilegt frá degi til dags. Fólk getur aftur á móti komist samdægurs til hjúkrunarfræðings, en þeir geta sinnt sjúklingum sem hafa grun um kynsjúkdómasmit en eru án einkenna. Niðurstöður úr HIV, klamydíu- og lekandaprófi koma að 3–4 virkum dögum liðnum. Önnur próf geta tekið lengri tíma t.d. sárasótt allt að 2 vikum.
Ekki er venja að taka strok úr munni en það er gert ef ástæða þykir til. Af þessu má sjá að hægt er að panta tíma allan daginn en ekki hefur verið hægt að bóka tíma með tölvupósti eða með símsvara utan vinnutíma.
Heilsugæslan
Hægt er að panta tíma til þess að fá upplýsingar, ráðgjöf, skoðun og meðferð vegna kynsjúkdóma hjá læknum heilsugæslustöðva. Komist fólk ekki samdægurs til læknis bjóða allar heilsugæslustöðvar upp á síðdegisvaktir. Í langflestum tilvikum eru þær á milli kl. 16–18. Jafnframt er hægt að hringja eða hitta hjúkrunarfræðinga sem þar starfa á milli kl. 8–16. Þeir gefa m.a. upplýsingar og ráðgjöf um kynsjúkdóma og geta gefið forgangstíma hjá læknum meti þeir aðstæður þannig. Þessi þjónusta á að vera öllum þeim sem leita til heilsugæslustöðvanna sér að kostnaðarlausu.
Einhverjar heilsugæslustöðvar bjóða ungu fólki upp á upplýsingar, ráðgjöf, skoðun og meðferð við kynsjúkdómum á sérstökum unglingamóttökum. Þær eru yfirleitt opnar í eina klukkustund í viku. Því miður hafa ekki fengist fjárveitingar til að hafa opnunartímann lengri. Aðsóknin í sumar þeirra hefur því miður ekki staðið undir væntingum. Þessi þjónusta hefur verið unga fólkinu að kostnaðarlausu.
Læknavaktin
Öllum landsmönnum býðst að koma samdægurs á Læknavaktina á milli kl. 17:00–23:30 alla virka daga og á milli kl. 9:00–23:30 um helgar. Þar eru alltaf fjórir heimilislæknar á vakt hverju sinni. Þar sem álag getur verið misjafnt á milli daga er hægt að aðlaga fjölda lækna eftir þörfinni hverju sinni. Þeir skrifa beiðnir fyrir blóðprufur eða þvagprufur á rannsóknarstofum og taka sýni til ræktunar. Stundum taka þeir ræktanir á staðnum. Niðurstöður eru sendar heimilislækni viðkomandi sjúklings sé hann til staðar eða þá að vakthafandi læknir fylgir málinu eftir en þetta er samkomulag hvers og eins læknis og sjúklings hverju sinni. Hjúkrunarfræðingar veita símaráðgjöf og hvetja fólk til að koma á vaktina meti þeir aðstæður þannig.
G-3, göngudeild smitsjúkdóma, Landspítala Fossvogi
Á G-3 er hægt að fá HIV-, lifrarbólgu B og C próf án þess að panta tíma alla virka daga milli kl. 8:00–16:00. Sýni eru tekin allan daginn og læknar veita svör úr þeim eftir mesta lagi eina viku.
Hraðprófun á HIV hefur ekki verið til staðar hér á landi. Ástæðan er sú að mikilvægt er talið að próf tengist ráðgjöf, að það sé öruggt og sé staðfest með öðru prófi.
Sérfræðingar á stofu
Hægt er að panta tíma hjá kvensjúkdómalæknum, húð –og kynsjúkdómalæknum og öðrum sérfræðingum á einkastofum. Því fylgir læknis- og lyfjakostnaður.
Samantekt
- Hægt er að panta tíma hjá lækni alla virka daga á heilsugæslustöðvum og á A-1 og G-3 á Landspítala Fossvogi og jafnvel hægt að hitta hjúkrunarfræðing sem getur komið málum í farveg.
- Sé óskað eftir þjónustu samdægurs er hægt að fara á síðdegisvaktir heilsugæslustöðvanna og á Læknavaktina sem opin er til miðnættis alla virka daga og um helgar.
- Hægt er að fá HIV próf fyrirvaralaust alla virka daga.
- Það er ekki hjá því komist að bíða í fáeina daga eftir niðurstöðum prófa, það er nauðsynlegt til þess að tryggja gæði niðurstaðanna. Slíkt ferli tekur mislangan tíma eftir því hvaða sjúkdóm verið er að greina. Unglingar jafnt sem aðrir hafa því aðgengi að ofangreindum stöðum.
Uppfært 10. mars 2009