NCSP 2011
NCSP 2011 uppfærsla
NCSP útgáfa 2011 samanstendur af 8,287 kóðum og bættust 11 nýir við að þessu sinni en engir kóðar voru gerðir óvirkir. Þýðingum nýrra kóða er ekki að fullu lokið en fyrir nýja kóða er enski textinn tæmandi.
Þetta er í þriðja sinn sem NCSP er gefið út í heild rafrænt, á íslensku og ensku með öllum tilheyrandi skýringartextum. Því er útgáfan á þrenns konar formi, styttri útgáfa á excel-formi, sem eins og áður hefur aðeins heiti kóða, lengri útgáfa á excel-formi með skýringartextum og loks gagnagrunnsform með tilheyrandi skráarlýsingu til birtingar í hugbúnaði heilbrigðisstofnana.
Rétt er að minna á að í fyrirmælum landlæknis um lágmarksskráningu í heilbrigðisþjónustu er mælt fyrir um að rafrænt birtingarform flokkunarkerfa sýni skýringar til að styðja rétta skráningu.
Uppfært 7. janúar 2011