Starfsleyfi heilbrigðisstétta færð til landlæknis
Dreifibréf Landlæknisembættisins nr. 6/2008
Efni: Afgreiðsla starfsleyfa heilbrigðisstétta færð til landlæknis
Heilbrigðisstéttir njóta lögverndaðs starfsheitis skv. lögum nr. 24/1985. Frá og með 1. apríl 2008 þarf starfsleyfi landlæknis til að starfa hér á landi sem starfsmaður í heilbrigðisstétt. Nánar er kveðið á um skilyrði fyrir veitingu starfsleyfa í lögum og reglugerðum um starfsréttindi heilbrigðisstétta.
Heilbrigðisstéttir í landinu eru alls 32 og njóta þær lögverndaðs starfsheitis. Er kveðið á um skilyrði fyrir veitingu starfsleyfa í ýmsum lögum og reglugerðum um starfsréttindi heilbrigðisstétta, en með ofangreindum lögum er gerð sú breyting að landlæknir gefur út starfsleyfi þesssara stétta í stað heilbrigðisráðherra.
Umsóknir um starfsleyfi heilbrigðisstétta verða því eftirleiðis afgreiddar alfarið hjá Landlæknisembættinu, en umsóknarferlið sjálft verður að mestu óbreytt. Eyðublöð fyrir umsóknir um starfsleyfi, sérfræðingsleyfi og vottorð um starfsleyfi er hægt að nálgast á vefsíðum fyrir viðkomandi heilbrigðisstéttir hér á vef Landlæknisembættisins undir Starfsleyfi. Þar eru einnig leiðbeiningar og upplýsingar um gögn sem þurfa að fylgja umsóknum, eftir því sem við á um hverja stétt.
Sótt er um starfsleyfi til Landlæknisembættisins á þar til gerðum eyðublöðum. Hið sama gildir um sérfræðileyfi tiltekinna heilbrigðisstétta. Eyðublöðin er hægt að nálgast á vef embættisins (sjá síðuna Starfsleyfi). Landlæknir leggur faglegt mat á hvort öllum skilyrðum fyrir veitingu starfsleyfisins hefur verið fullnægt og gefur síðan út starfsleyfið.
Útfylltar umsóknir um starfsleyfi þarf að undirrita og senda Landlæknisembættinu ásamt staðfestum ljósritum af nauðsynlegum gögnum. Með staðfestu ljósriti er átt við að samræmi milli frumrits og ljósrits sé staðfest, en gögnin fást staðfest á lögreglustöðvum eða hjá sýslumanni.
Gjald fyrir starfsleyfi er kr. 5.500.- en kr. 1.350.- fyrir vottorð vegna starfsleyfis. Við afgreiðslu leyfis er greiðsluseðill sendur umsækjanda.
Vinsamlegast kynnið fyrir félagsmönnum og útskriftarnemum.
Seltjarnarnesi, 28. maí 2008
Landlæknir
Sent fagfélögum heilbrigðisstétta, háskólum og
verkmennta- og framhaldsskólum sem mennta heilbrigðisstéttir
Uppfært 28. nóvember 2008