Meðgönguvernd heilbrigðra kvenna
Dreifibréf Landlæknisembættisins nr. 5/2008
Efni: Handbók um meðgönguvernd heilbrigðra kvenna í eðlilegri meðgöngu
Landlæknisembættið hefur gefið út vandaða handbók með klínískum leiðbeiningum um meðgönguvernd heilbrigðra kvenna í eðlilegri meðgöngu. Leiðbeiningarnar eru þýddar og staðfærðar úr leiðbeiningum National Institute for Clinical Excellence (NICE), 2003.
Landlæknisembættið stofnaði fagráð um mæðravernd árið 1999 sem auk annars fékk það verkefni að vinna að gerð klínískra leiðbeininga fyrir meðgönguvernd. Árið 2004 hófst samvinna milli Miðstöðvar mæðraverndar og Landlæknisembættisins um þetta verkefni. Ákveðið var að leita að klínískum leiðbeiningum fyrir meðgönguvernd erlendis og þýða og staðfæra þær með hliðsjón af íslenskum aðstæðum.
Þær leiðbeiningar sem þóttu skara fram úr að gæðum og virtust falla vel að íslenskri meðgönguvernd voru frá NICE (Antenatal care - routine care for the healthy pregnant woman), gefnar út 2003. Embættið leitaði álits ljósmæðra, fæðinga- og kvensjúkdómalækna og heimilislækna, sem voru sammála um að þessar leiðbeiningar gætu fallið vel að íslenskum aðstæðum.
Ákveðið var að þýða einungis samantekt klínískra leiðbeininga NICE, sem er að finna í samantekt leiðbeininganna (Summary of recommendations and practice algorithm), en vísa að öðru leyti í ensku útgáfuna um rökstuðning og rannsóknir sem liggja að baki. Nánari upplýsingar gefa Hildur Kristjánsdóttir, ljósmóðir, Landlæknisembættinu og Jóna Dóra Kristinsdóttir, yfirljósmóðir, Miðstöð mæðraverndar.
Leiðbeiningarnar eru gefnar út í lausblaða möppu þannig að hægt er að bæta við eða skipta út efni sem breytist í ljósi nýrrar þekkingar. Einnig fylgir með möppunni plastað spjald með yfirliti yfir áhersluatriði skoðana til hægðarauka fyrir þá sem sinna meðgönguvernd. Allar breytingar á efni verða tilkynningar með dreifibréfi.
Hægt er að panta möppuna „Meðgönguvernd heilbrigðra kvenna í eðlilegri meðgöngu“ í póstkröfu á skrifstofu Landlæknisembættisins í síma 510-1900 eða á tölvupóstfanginu mottaka@landlaeknir.is og er verð möppunnar krónur 4000 fyrir utan póstkostnað.
Seltjarnarnesi 27. maí 2008
Landlæknir
Sent til framkvæmdastjóra lækninga og hjúkrunar á Landspítala-háskólasjúkrahúsi
og sviðsstjóra kvenna- og barnasviðs LSH, Fjórðungssjúkrahúsinu Akureyri,
Heilsugæslu höfuðborgarsvæðsins, heilbrigðisstofnunum/ heilsugæslustöðvum,
Miðstöðvar mæðraverndar, Miðstöðar heilsuverndar barna, Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga,
Ljósmæðrafélag Íslands, Félags íslenskra heimilislækna, Læknafélags Íslands,
Félags íslenskra fæðinga- og kvensjúkdómalækna, Félags barnalækna,
Læknadeildar HÍ, Hjúkrunarfræðideildar og Ljósmæðraskorar HÍ og Hjúkrunarfræðideildar HA.
Uppfært 28. nóvember 2008