Rekstur heilbrigðisþjónustu, tilkynningaskylda o.fl.
Dreifibréf Landlæknisembættisins nr. 4/2008
Efni: Rekstur heilbrigðisþjónustu, tilkynningaskylda og staðfesting landlæknis
Með vísan í lög um heilbrigðisþjónustu nr. 40/2007 og lög um landlækni nr. 41/2007 vill landlæknir vekja athygli á því að nú er óheimilt að hefja starfsemi á sviði heilbrigðisþjónustu áður en fyrir liggur staðfesting landlæknis um að ákveðnar faglegar lágmarkskröfur séu uppfylltar. Fyrirhugaðan resktur heilbrigðisþjónustu ber að tilkynna til landlæknis. Landlæknir skal halda skrá yfir rekstraraðila og verði breytingar á þjónustu rekstraraðila eða rekstri heilbrigðisþjónustu hætt skal það tilkynnt til landlæknis.
Fjallað er um faglegar lágmarkskröfur til reksturs heilbrigðisþjónustu í IV. kafla reglugerðar nr. 786/2007 um eftirlit landlæknis með rekstri heilbrigðisþjónustu og faglegar lágmarkskröfur. Landlæknir skal setja fram faglegar lágmarkskröfur varðandi húsnæði, aðstöðu, tæki, búnað og mönnun. Einnig ber að fylgja fyrirmælum sem landlækni er heimilt að gefa út sbr. 12. gr. IV. kafla í fyrrgreindri reglugerð.
Hafi heilbrigðisstafsmaður eða annar þar til bær aðili áform um að hefja rekstur heilbrigðisþjónustu er honum bent á að tilkynna það til landlæknis. Í tilkynningunni skulu koma fram almennar upplýsingar um heilbrigðisstarfsmann auk ákveðinnar lýsingar á fyrirkomulagi varðandi aðstöðu, tækjakost, búnað og mönnun. Skylt er að starfsleyfi í húsnæði hafi verið gefið út af heilbrigðiseftirliti viðkomandi sveitarfélags og skal afrit af leyfinu fylgja tilkynningunni til landlæknis. Bent er á að upplýsingar um tilkynninguna og eyðublöð má nálgast á vefsetri Landlæknisembættisins /pages/1330.
Upplýsingar í tilkynningu um fyrirhugaðan rekstur eru forsendur þess að landlæknir geti metið hvort hægt verði að staðfesta að fyrirhugaður rekstur heilbrigðisþjónustu sé talinn uppfylla faglegar lágmarkskröfur.
Seltjarnarnesi 17. apríl 2008
Landlæknir
Sent fagfélögum heilbrigðisstétta,
heilbrigðisráðuneytinu, samninganefnd heilbrigðisráðherra,
Umhverfisstofnun og félags- og tryggingamálaráðuneytinu.
Uppfært 28. nóvember 2008