Tilkynning um rekstur

Rekstur heilbrigðisþjónustu, tilkynningaskylda og staðfesting landlæknis

 

Heilbrigðisstarfsmanni og öðrum sem hyggjast hefja rekstur heilbrigðisþjónustu ber að tilkynna það til landlæknis. Er það í samræmi við lög um heilbrigðisþjónustu nr. 40/2007 og lög um landlækni nr. 41/2007. Í tilkynningunni skulu koma fram almennar upplýsingar um heilbrigðisstarfsmann eða heilbrigðisstofnun auk lýsingar á aðstöðu, tækjakosti, búnaði og mönnun. Tilkynningunni skal fylgja afrit af starfsleyfi í húsnæði sem heilbrigðiseftirlit viðkomandi sveitarfélags hefur gefið út.

 

Rekstaraðilar í heilbrigðisþjónustu þurfa að uppfylla ákveðnar faglegar lágmarkskröfur til að mega hefja starfsemi á sviði heilbrigðisþjónustu og skal liggja fyrir staðfesting landlæknis þess efnis áður en starfsemin hefst. Upplýsingar í tilkynningu um fyrirhugaðan rekstur heilbrigðisþjónustu eru forsendur þess að landlæknir geti metið hvort hægt sé að staðfesta að reksturinn teljist uppfylla faglegar lágmarkskröfur.

 

Fjallað er um faglegrar lágmarkskröfur til reksturs heilbrigðisþjónustu í IV. kafla reglugerðar um eftirlit landlæknis með rekstri heilbrigðisþjónustu og faglegar lágmarkskröfur, nr. 786/2007 . Landlæknir setur samkvæmt reglugerðinni fram faglegar lágmarkskröfur varðandi húsnæði, aðstöðu, tæki, búnað og mönnun. Einnig ber að fylgja fyrirmælum sem landlækni kann að gefa út með heimild í. 12. gr. IV. kafla reglugerðarinnar.

 

Landlæknir heldur skrá yfir rekstraraðila í heilbrigðisþjónustu og verði breytingar á þjónustu þeirra eða rekstrinum hætt skal það tilkynnt til landlæknis.


Síðast breytt/uppfært 16. janúar 2012

Tilkynning um rekstur

Tilkynning

Eyðublöðin opnast í nýjum glugga. Fyllið út rafrænt og prentið síðan út, skrifið undir og sendið með pósti.   





Aukaval


Leturstærðir


Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli