Sérfræðileyfi tannlækna


Sérfræðileyfi tannlækna

Samkvæmt reglugerð nr. 545/2007 um sérfræðileyfi tannlækna geta tannlæknar fengið sérfræðileyfi í eftirfarandi greinum tannlækninga:

  1. Barnatannlækningum
  2. Bitlækningum
  3. Munn- og kjálkaskurðlækningum
  4. Tannfyllingu og tannsjúkdómalækningum
  5. Tannholdslækningum
  6. Tannholslækningum
  7. Tann- og munngervalækningum
  8. Tannréttingum
  9. Samfélagstannlækningum
  10. Öldrunartannlækningum
  11. Lyflækningum munnhols
  12. Myndgreiningu munns og kjálka.

Skilyrði fyrir veitingu sérfræðileyfa eru að:

  • Umsækjandi hafi tannlækningaleyfi hér á landi og hafi stundað tannlækningar í a.m.k. eitt ár áður en sérnám hefst.

  • Umsækjandi hafi stundað sérnám við viðurkennda menntastofnun, hafi lokið námi og uppfyllt þær kröfur sem gerðar eru á hverjum tíma við viðkomandi stofnun fyrir það sérnám sem að öllu jöfnu skal vera a.m.k. 10 mánuðir á hverjum stað. Sérnám skal vera a.m.k. 3 ár að undanskildum munn- og kjálkaskurðlækningum sem skal vera a.m.k. 5 ár.

  • Umsækjandi leggi fram ritgerð um efni er snertir sérgrein hans og byggir á eigin rannsóknargögnum.

  • Umsækjandi um sérfræðileyfi í klínískri grein leggi fram a.m.k. 10 sjúkraskrár tilfella sem hann hefur sjálfur unnið og sýna fjölbreytta þekkingu á lausn klínískra vandamála þar sem þeim verður við komið.

  • Umsækjandi um sérfræðileyfi í samfélagstannlækningum leggi fram ritgerðir, tvær eða fleiri sem birst hafa í viðurkenndu sérfræðitímariti.

Veita má tannlækni sérfræðileyfi í fleiri en einni af sérgreinum tannlækninga að uppfylltum ofangreindum skilyrðum í hverri sérgrein fyrir sig.

Nefnd sem skipuð er skv. 5. gr. laga nr. 38/1985 um tannlækningar fjallar um reglur um nám sérfræðinga og umsóknir um sérfræðileyfi tannlækna. Umsækjandi um sérfræðileyfi þarf að sanna fyrir sérfræðinefnd að hann uppfylli skilyrði sem talin eru hér að ofan og skila inn staðfestum ljósritum af gögnum ásamt undirritaðri umsókn. Með staðfestu ljósriti er átt við að samræmi milli frumrits og ljósrits sé staðfest, en gögnin fást staðfest hjá viðkomandi skóla (ef nám var stundað á Íslandi), hjá Landlæknisembættinu, á lögreglustöðvum eða hjá sýslumanni.

Gjald fyrir sérfræðileyfi er kr. 8.300.- og verður greiðsluseðill sendur umsækjanda við afgreiðslu leyfisins.


Uppfært 21. janúar 2010




Aukaval


Leturstærðir


Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli