Sérfræðileyfi í hjúkrun
Skilyrði fyrir útgáfu sérfræðileyfa í hjúkrun eru skilgreind og skýrð í reglugerð nr. 124/2003 um veitingu sérfræðileyfa í hjúkrun. Reglugerðin er sett með stoð í hjúkrunarlögum nr. 8/1974 með síðari breytingum.
Sérfræðingur sem hlýtur sérfræðileyfi samkvæmt þessari reglugerð þarf að endurnýja sérfræðileyfi sitt á 10 ára fresti og þarf þá að staðfesta að hann starfi og hafi viðhaldið þekkingu sinni í þeirri sérgrein eða á því sérsviði sem hann hefur sérfræðileyfi í. Leitað er umsagnar hjúkrunarráðs áður en sérfræðileyfi í hjúkrun er útgefið.
Rétt til að öðlast sérfræðileyfi í hjúkrun hafa þeir sem:
- Hafa hjúkrunarleyfi hér á landi.
- Hafa lokið meistaraprófi, licentiatprófi eða doktorsprófi frá viðurkenndum háskóla, eða sambærilegri menntun.
- Hafa unnið við hjúkrun að loknu prófi samkvæmt 2. tölulið, sem svarar til að minnsta kosti tveimur árum í fullu starfi við þá sérgrein eða á því sérsviði sem umsókn hans um sérfræðileyfi tekur til.
Undirritaðri umsókn um sérfræðileyfi í hjúkrun skulu fylgja:
- Námsferill. Staðfesting á að umsækjandi hafi lokið meistaranámi á því sviði sem sótt er um. Nauðsynlegt er að senda inn staðfestan námsferil (transcript) frá viðkomandi háskólastofnun.
- Námsskrá. Sé heiti námskeiða ekki lýsandi fyrir innihald þeirra er hjálplegt að senda inn almenna lýsingu á náminu eða námsskrá (syllabus).
- Verkefni á sérsviði. Komi ekki skýrt fram í þessum gögnum að námið hafi verið á því sviði sem sótt var um getur umsækjandi sent inn frekari gögn eins og námsritgerðir og lýsingar á klínísku námi.
- Lokaverkefni. Óskað er eftir upplýsingum um heiti lokaverkefnis í meistaranámi og stuttri lýsingu á því. Meistaraverkefnið má gjarnan fylgja umsókn.
- Starfsvottorð. Staðfesting á að umsækjandi hafi starfað á því sviði sem óskað er eftir viðurkenningu á og jafnframt tímalengd og starfshlutfall. Til að fullnægja kröfu um fullt starf í tvö ár gæti umsækjandi þurft að leggja fram starfsvottorð frá fleirum en einum aðila. Í öllum tilvikum er nauðsynlegt að fram komi hvert var starfssvið umsækjanda, starfshlutfall og tímalengd ráðningar.
Útfylltar umsóknir um starfsleyfi þarf að undirrita eigin hendi og senda Landlæknisembættinu ásamt staðfestum ljósritum af nauðsynlegum gögnum. Með staðfestu ljósriti er átt við að samræmi milli frumrits og ljósrits sé staðfest, en gögnin fást staðfest hjá viðkomandi skóla (ef nám var stundað á Íslandi), hjá Landlæknisembættinu, á lögreglustöðvum eða hjá sýslumanni.
Gjald fyrir starfsleyfi er kr. 8.300.- en kr. 2.000.- fyrir vottorð vegna starfsleyfis. Við afgreiðslu leyfis er greiðsluseðill sendur umsækjanda.
ATH. Umsóknareyðublöðin opnast í nýjum glugga.
- Umsókn um sérfræðileyfi í hjúkrun (doc 260 KB)
- Umsókn um vottorð vegna starfsleyfis (doc 256 KB)
- Gátlisti vegna umsókna um sérfræðileyfi
Umsókn um vottorð vegna starfsleyfis má senda Landlæknisembættinu í pósti, símbréfi eða í tölvupósti á mottaka@landlaeknir.is
Uppfært 25. janúar 2012