Sérfræðileyfi í félagsráðgjöf
Í reglugerð nr. 555/1999 um sérfræðileyfi í félagsráðgjöf, er réttur til að kalla sig sérfræðing á sérsviði innan félagsráðgjafar skilgreindur. Sérsvið félagsráðgjafar eru:
- Félagsráðgjöf á heilbrigðissviði – klínísk félagsráðgjöf
- Félagsráðgjöf í félagsþjónustu
- Félagsráðgjöf á fræðslu- og skólasviði
- Félagsráðgjöf í fangelsismála- og dómskerfi
Sérfræðinefnd úrskurðar um umsóknir um sérfræðileyfi á öðrum sviðum en hér eru nefnd.
Kröfur sem umsækjandi þarf að fullnægja til að geta sótt um sérfræðileyfi eru að viðkomandi hafi:
- Leyfi landlæknis (áður heilbrigðisráðherra) til að kalla sig félagsráðgjafa.
- Lokið eigi minna en 5 ára háskólanámi með framhaldsnám í félagsráðgjöf.
- Fengið handleiðslu á starfsþjálfunartíma sem nemur 120 handleiðslutímum í einstaklings-handleiðslu og 40 tímum í hóphandleiðslu, sem og að hafa lokið fræðilegu námi sem nánari skilyrði eru sett um í vinnureglum sérfræðinefndar.
- Ritað um fræðilegt efni í félagsráðgjöf innan sérfræðisviðsins. Gerð er krafa um sjálfstætt fræðilegt ritverk sem byggir á eigin rannsókn á sviðinu. Ritverkið skal hafa verið birt í viðurkenndu vísindatímariti eða í sérstöku riti/bæklingi/bók þar sem fræðilegum kröfum er fylgt (skv. 9. gr).
Heimilt er að synja félagsráðgjafa um sérfræðileyfi ef óeðlilega langur tími telst frá því hann lauk samfelldu sérnámi.
Undirritaðri umsókn um sérfræðileyfi félagsráðgjafa þurfa að fylgja staðfestingar á að umsækjandi uppfylli ofangreindar kröfur um menntun þ.e. framhaldsnám, aðfararnám og sérnám, ásamt staðfestingu á starfsþjálfun og ritsmíðum.
Útfylltar umsóknir um sérfræðileyfi í félagsráðgjöf þarf að undirrita og senda Embætti landlæknis ásamt staðfestum ljósritum af nauðsynlegum gögnum. Með staðfestu ljósriti er átt við að samræmi milli frumrits og ljósrits sé staðfest, en gögnin fást staðfest hjá viðkomandi skóla (ef nám var stundað á Íslandi), hjá Embætti landlæknis, á lögreglustöðvum eða hjá sýslumanni.
Gjald fyrir starfsleyfi er kr. 8.300.- en kr. 2.000.- fyrir vottorð vegna starfsleyfis. Við afgreiðslu leyfis er greiðsluseðill sendur umsækjanda.
ATH. Umsóknareyðublöð opnast í nýjum glugga.
- Umsókn um sérfræðileyfi félagsráðgjafa (doc 272 KB)
- Umsókn um vottorð vegna starfsleyfis (doc 256 KB)
- Gátlisti vegna umsókna um sérfræðileyfi
Umsókn um vottorð vegna starfsleyfis má senda Embætti landlæknis í pósti, símbréfi eða í tölvupósti á mottaka@landlaeknir.is
Uppfært 4. apríl 2012