Gátlisti vegna umsókna um sérfræðileyfi
Réttur til sérfræðileyfa heilbrigðisstétta er skilgreindur og skýrður í reglugerðum heilbrigðisráðuneytisins um viðkomandi stéttir. Reglugerðirnar eru settar með stoð í lögum nr. 24/1985 um starfsheiti og starfsréttindi heilbrigðisstétta og einnig með stoð í lögum um starfsréttindi viðkomandi heilbrigðisstéttar.
Atriði sem allir umsækjendur um sérfræðileyfi þurfa að hafa í huga eru eftirfarandi:
- Vottorð um starfsleyfi frá Landlæknisembættinu.
- Staðfest ljósrit af meistaraprófsskírteini eða doktorsprófi auk nánara yfirlits yfir námsferil að baki meistaragráðu eða doktorsgráðu.
- Hafi umsækjandi ekki meistara- eða doktorspróf skili hann öllum prófskírteinum og vottorðum á námsferli vegna sérnáms.
- Skrá yfir greinaskrif (fræðilegs eðlis) og kennslureynslu.
- Vottun um starfsferil að loknu sérnámi.
- Vegna endurnýjunar á sérfræðileyfi skal umsækjandi skila vottun á viðhaldsmenntun og starfi á sérsviðinu.
Síðast breytt 21. janúar 2010