Þroskaþjálfar
Starfsréttindi þroskaþjálfa
Réttur til að kalla sig þroskaþjálfa og starfa sem slíkur hér á landi er skilgreindur í lögum nr. 18/1978 um þroskaþjálfa með áorðnum breytingum og reglugerð nr. 215/1987 um störf, starfsvettvang og starfshætti þroskaþjálfa.
Leyfi er veitt þeim sem lokið hafa prófi frá þroskaþjálfabraut Kennaraháskóla Íslands. Einnig er leyfi veitt þeim sem lokið hafa hliðstæðu námi erlendis, sé námið viðurkennt sem slíkt af heilbrigðisyfirvöldum þess lands, þar sem námið er stundað. Áður en slíkt leyfi er veitt er leitað umsagnar Félags þroskaþjálfa og þroskaþjálfabrautar Kennaraháskóla Íslands.
Fylgiskjöl
- Undirritaðri umsókn um starfsleyfi þarf að fylgja staðfest ljósriti af prófskírteini.
- Umsækjendur um starfsleyfi þroskaþjálfa, sem lokið hafa námi erlendis, skulu auk þess skila inn staðfestu ljósriti af starfsleyfi, sé því til að dreifa, og ítarlegum upplýsingum um námið.
- Erlendir ríkisborgarar skulu einnig skila inn staðfestu ljósriti af vegabréfi.
Útfylltar umsóknir um starfsleyfi þarf að undirrita og senda Landlæknisembættinu ásamt staðfestum ljósritum af nauðsynlegum gögnum. Með staðfestu ljósriti er átt við að samræmi milli frumrits og ljósrits sé staðfest, en gögnin fást staðfest hjá viðkomandi skóla (ef nám var stundað á Íslandi), hjá Landlæknisembættinu, á lögreglustöðvum eða hjá sýslumanni.
Gjald fyrir starfsleyfi er kr. 8.300.- en kr. 2.000.- fyrir vottorð vegna starfsleyfis. Við afgreiðslu leyfis er greiðsluseðill sendur umsækjanda.
ATH. Umsóknareyðublöðin opnast í nýjum glugga.
- Umsókn um starfsleyfi (doc 258 KB)
- Umsókn um vottorð vegna starfsleyfis (doc 256 KB)
Umsókn um vottorð vegna starfsleyfis má senda Landlæknisembættinu í pósti, símbréfi eða í tölvupósti á mottaka@landlaeknir.is.
Uppfært 21. janúar 2010