Tannlæknar

Starfsréttindi tannlækna

Réttur til að kalla sig tannlækni og stunda tannlækningar hér á landi er skilgreindur í lögum nr. 38/1985 um tannlækningar. Leyfi er veitt þeim sem lokið hafa prófi frá tannlæknadeild Háskóla Íslands, en áður er leitað umsagnar tannlæknadeildar HÍ um hæfni umsækjanda til tannlæknisstarfa.

Fylgiskjöl

  • Umsækjendur með próf frá tannlæknadeild HÍ þurfa að skila inn staðfestu ljósriti af prófskírteini, heilbrigðisvottorði og sakavottorði.

  • Umsækjendur sem lokið hafa prófi í tannlækningum frá landi sem er aðili að samningi um Evrópskt efnahagssvæði (EES) eða stofnsamningi Fríverslunarsamtaka Evrópu þurfa að skila inn staðfestu ljósriti af prófskírteini, staðfestu ljósriti af starfsleyfi, Letter of Good Standing, sem staðfestir að leyfið sé í gildi, og vottorði um að þeir uppfylli kröfur EES.

  • Umsækjendur frá löndum utan Evrópska efnahagssvæðisins þurfa að skila inn gögnum um námið sem þeir hafa stundað.
    Tannlæknadeild HÍ getur farið fram á að viðkomandi sanni hæfni sína með prófi og erlendir ríkisborgarar þurfa að sanna fullnægjandi kunnáttu sína í íslenskri tungu.

  • Erlendir ríkisborgarar þurfa auk þess að skila inn staðfestu ljósriti af vegabréfi.


Sérfræðileyfi tannlækna


Útfylltar umsóknir um starfsleyfi þarf að undirrita og senda Landlæknisembættinu ásamt staðfestum ljósritum af nauðsynlegum gögnum. Með staðfestu ljósriti er átt við að samræmi milli frumrits og ljósrits sé staðfest, en gögnin fást staðfest hjá viðkomandi skóla (ef nám var stundað á Íslandi), hjá Landlæknisembættinu, á lögreglustöðvum eða hjá sýslumanni.

Gjald fyrir starfsleyfi er kr. 8.300.- en kr. 2.000.- fyrir vottorð vegna starfsleyfis. Við afgreiðslu leyfis er greiðsluseðill sendur umsækjanda.

ATH.Umsóknareyðublöðin opnast í nýjum glugga.

Umsókn um vottorð vegna starfsleyfis má senda Landlæknisembættinu í pósti, símbréfi eða í tölvupósti á mottaka@landlaeknir.is.


Uppfært 21. janúar 2010




Aukaval


Leturstærðir


Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli