Tannfræðingar
Starfsréttindi tannfræðinga
Réttur til að kalla sig tannfræðing og starfa sem slíkur hér á landi er skilgreindur í reglugerð nr. 638/1987 um menntun, réttindi og skyldur tannfræðings. Leyfi er veitt þeim sem lokið hafa prófi frá skólum sem viðurkenndir eru sem slíkir af heilbrigðisyfirvöldum. Áður en leyfi eru gefin út er leitað umsagnar Félags íslenskra tannfræðinga og tannlæknadeildar Háskóla Íslands.
Undirritaðri umsókn um starfsleyfi þurfa að fylgja staðfest ljósriti af prófskírteini ásamt ítarlegum upplýsingum um námið.
Útfylltar umsóknir um starfsleyfi þarf að undirrita og senda Landlæknisembættinu ásamt staðfestum ljósritum af nauðsynlegum gögnum. Með staðfestu ljósriti er átt við að samræmi milli frumrits og ljósrits sé staðfest, en gögnin fást staðfest hjá viðkomandi skóla (ef nám var stundað á Íslandi), hjá Landlæknisembættinu, á lögreglustöðvum eða hjá sýslumanni.
Gjald fyrir starfsleyfi er kr. 8.300.- en kr. 2.000.- fyrir vottorð vegna starfsleyfis. Við afgreiðslu leyfis er greiðsluseðill sendur umsækjanda.
ATH. Umsóknareyðublöð opnast í nýjum glugga.
- Umsókn um starfsleyfi (doc 256 KB)
- Umsókn um vottorð vegna starfsleyfis (doc 255 KB)
Umsókn um vottorð vegna starfsleyfis má senda Landlæknisembættinu í pósti, símbréfi eða í tölvupósti á mottaka@landlaeknir.is.
Uppfært 21. janúar 2010