Talmeinafræðingar


Starfsréttindi talmeinafræðinga

Réttur til að kalla sig talmeinafræðing og starfa sem slíkur hér á landi er skilgreindur í reglugerð nr. 618/1987 um réttindi og skyldur talmeinafræðinga með áorðnum breytingum samkvæmt reglugerð nr. 480/1988.

Leyfi er veitt þeim sem lokið hafa prófi eftir að minnsta kosti 3ja ára nám í talmeinafræði við háskóla sem Landlæknisembættið (áður heilbrigðisráðuneyt) viðurkennir og jafnframt eru viðurkenndir af heilbrigðisstjórn þess lands, þar sem námið er stundað. Ennfremur skulu umsækjendur hafa lokið 6 mánaða verklegri þjálfun undir leiðsögn talmeinafræðings.

Erlendir ríkisborgarar sem sækja um starfsleyfi talmeinafræðings hér á landi skulu jafnframt sanna kunnáttu sína í töluðu og rituðu íslensku máli. Áður en leyfi eru veitt er leitað umsagnar yfirlæknis Heyrnar- og talmeinastöðvar Íslands.

Undirritaðri umsókn um starfsleyfi þarf að fylgja staðfest ljósriti af prófskírteini auk ítarlegra upplýsinga um námið.

Útfylltar umsóknir um starfsleyfi þarf að undirrita og senda Landlæknisembættinu ásamt staðfestum ljósritum af nauðsynlegum gögnum, þ.e. prófskírteini og yfirliti um um námskeið sem lokið er auk staðfests ljósrits af vottorði um að umsækjandi hafi lokið 6 mánaða verklegri þjálfun undir leiðsögn talmeinafræðings. Með staðfestu ljósriti er átt við að samræmi milli frumrits og ljósrits sé staðfest, en gögnin fást staðfest hjá viðkomandi skóla (ef nám var stundað á Íslandi), hjá Landlæknisembættinu, á lögreglustöðvum eða hjá sýslumanni.

Gjald fyrir starfsleyfi er kr. 8.300.- en kr. 2.000.- fyrir vottorð vegna starfsleyfis. Við afgreiðslu leyfis er greiðsluseðill sendur umsækjanda.

ATH. Umsóknareyðublöðin opnast í nýjum glugga.

Umsókn um vottorð vegna starfsleyfis má senda Landlæknisembættinu í pósti, símbréfi eða í tölvupósti á mottaka@landlaeknir.is.


Síðast breytt/uppfært 28. febrúar 2011




Aukaval


Leturstærðir


Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli