Stoðtækjafræðingar


Starfsréttindi stoðtækjafræðinga

Réttur til að kalla sig stoðtækjafræðing og starfa sem slíkur hér á landi, er skilgreindur í reglugerð nr. 460/2007 um menntun, réttindi og skyldur stoðtækjafræðinga. Reglugerðin er sett samkvæmt 2. gr. laga nr. 24/1985 um starfsheiti og starfsréttindi heilbrigðisstétta. Um þagnarskyldu stoðtækjafræðinga gilda ákvæði laga um réttindi sjúklinga nr. 74/1997.

Leyfi er veitt þeim sem lokið hafa viðurkenndu námi í stoðtækjafræði. Starf stoðtækjafræðinga felst í smíði, ábyrgð á smíði, viðhaldi og eftirliti stoðtækja. Stoðtæki er vélrænn og/eða tæknilegur búnaður sem er liður í meðferð sjúkdóma eða aðlögunar útlima og sem festir eru eða settir á eða við líkama og limi svo sem:

  1. Gervilim sem koma skal algjörlega eða að hluta í stað útlims

  2. Spelkur eða umbúðir sem koma eiga í staðinn fyrir eða laga skerta getu líkamshluta.

Undirritaðri umsókn um starfsleyfi þarf að fylgja staðfest ljósrit af prófskírteini í stoðtækjafræði. Áður en starfsleyfi er gefið út er leitað álits Félags stoðtækjafræðinga.

Útfylltar umsóknir um starfsleyfi þarf að undirrita og senda Landlæknisembættinu ásamt staðfestum ljósritum af nauðsynlegum gögnum. Með staðfestu ljósriti er átt við að samræmi milli frumrits og ljósrits sé staðfest, en gögnin fást staðfest hjá viðkomandi skóla (ef nám var stundað á Íslandi), hjá Landlæknisembættinu, á lögreglustöðvum eða hjá sýslumanni.

Gjald fyrir starfsleyfi er kr. 8.300.- en kr. 2.000.- fyrir vottorð vegna starfsleyfis. Við afgreiðslu leyfis er greiðsluseðill sendur umsækjanda.

ATH. Umsóknareyðublöðin opnast í nýjum glugga.

Umsókn um vottorð vegna starfsleyfis má senda Landlæknisembættinu í pósti, símbréfi eða í tölvupósti á mottaka@landlaeknir.is.


Uppfært 21. janúar 2010





Aukaval


Leturstærðir


Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli