Sjúkraþjálfarar


Starfsréttindi sjúkraþjálfara

Réttur til að kalla sig sjúkraþjálfara og starfa sem slíkur hér á landi er skilgreindur í lögum nr. 58/1976 um sjúkraþjálfun með áorðnum breytingum. Leyfi er veitt þeim sem lokið hafa prófi frá skóla sem viðurkenndur er fullkominn sjúkraþjálfunarskóli af heilbrigðisstjórn þess lands sem námið var stundað í. Áður en starfsleyfi sjúkraþjálfara er gefið út er leitað umsagnar stjórnar námsbrautar í sjúkraþjálfun við Háskóla Íslands.


Fylgiskjöl
Með umsókn um starfsleyfi þarf að skila :

  • Staðfestu ljósriti af prófskírteini.

  • Umsækjendur sem lokið hafa námi erlendis þurfa auk þess að skila ítarlegri námslýsingu og staðfestu ljósriti af starfsleyfi, sé því til að dreifa, og Certificate of Current Professional Status (CCPS), sem staðfestir að námið uppfylli skilyrði í tilskipun ESB 2005/36ES og að viðkomandi starfsleyfi sé í gildi.

  • Erlendir ríkisborgarar sem sækja um starfsleyfi á Íslandi þurfa auk ofangreindra gagna að skila inn staðfestu ljósriti af vegabréfi.

Útfylltar umsóknir um starfsleyfi þarf að undirrita og senda Landlæknisembættinu ásamt staðfestum ljósritum af nauðsynlegum gögnum. Með staðfestu ljósriti er átt við að samræmi milli frumrits og ljósrits sé staðfest, en gögnin fást staðfest hjá viðkomandi skóla (ef nám var stundað á Íslandi), hjá Landlæknisembættinu, á lögreglustöðvum eða hjá sýslumanni.

Gjald fyrir starfsleyfi er kr. 8.300.- en kr. 2.000.- fyrir vottorð vegna starfsleyfis. Við afgreiðslu leyfis er greiðsluseðill sendur umsækjanda.

ATH. Umsóknareyðublöðin opnast í nýjum glugga.

Umsókn um vottorð vegna starfsleyfis má senda Landlæknisembættinu í pósti, símbréfi eða í tölvupósti á mottaka@landlaeknir.is.


Uppfært 25. október 2011




Aukaval


Leturstærðir


Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli