Sjúkranuddarar
Starfsréttindi sjúkranuddara
Réttur til að kalla sig sjúkranuddara og starfa sem slíkur hér á landi er skilgreindur í reglugerð nr. 204/1987 um menntun, réttindi og skyldur sjúkranuddara með áorðnum breytingum samkvæmt reglugerð nr. 285/1989.
Leyfi er veitt þeim sem lokið hafa námi sem viðurkennt er sem slíkt af heilbrigðisyfirvöldum. Umsækjendur skulu hafa næga kunnáttu í íslensku máli og réttarreglum er lúta að starfinu.
Undirritaðri umsókn um starfsleyfi þarf að fylgja staðfest ljósriti af prófskírteini ásamt ítarlegum upplýsingum um námið.
Útfylltar umsóknir um starfsleyfi þarf að undirrita og senda Landlæknisembættinu ásamt staðfestum ljósritum af nauðsynlegum gögnum. Með staðfestu ljósriti er átt við að samræmi milli frumrits og ljósrits sé staðfest, en gögnin fást staðfest hjá viðkomandi skóla (ef nám var stundað á Íslandi), hjá Landlæknisembættinu, á lögreglustöðvum eða hjá sýslumanni.
Gjald fyrir starfsleyfi er kr. 8.300.- en kr. 2.000.- fyrir vottorð vegna starfsleyfis. Við afgreiðslu leyfis er greiðsluseðill sendur umsækjanda.
ATH. Umsóknareyðublöðin opnast í nýjum glugga.
- Umsókn um starfsleyfi (doc 258 KB)
- Umsókn um vottorð vegna starfsleyfis (doc 256 KB)
Umsókn um vottorð vegna starfsleyfis má senda Landlæknisembættinu í pósti, símbréfi eða í tölvupósti á mottaka@landlaeknir.is.
Uppfært 21. janúar 2010