Sjúkraliðar
Starfsréttindi sjúkraliða
Réttur til að kalla sig sjúkraliða og starfa sem slíkur hér á landi er skilgreindur í lögum nr. 58/1984 um sjúkraliða og reglugerð nr. 897/2001 um menntun, réttindi og skyldur sjúkraliða. Leyfi er veitt þeim sem lokið hafa námi frá skóla hér á landi sem Landlæknisembættið viðurkennir.
Einnig má veita þeim starfsleyfi sjúkraliða sem lokið hafa námi erlendis, en áður en slíkt leyfi er veitt er leitað umsagnar Sjúkraliðafélags Íslands og hjúkrunarráðs. Hér á landi eru ekki veitt sérfræðileyfi sjúkraliða.
Fylgiskjöl
- Umsækjendur með próf frá íslenskum skóla þurfa að skila inn staðfestu ljósriti af prófskírteini af sjúkraliðabraut íslenskra fjölbrautaskóla.
- Umsækjendur sem lokið hafa sjúkraliðanámi erlendis skulu skila inn staðfestu ljósriti af prófskírteini auk nánari námslýsingar, þ.e.a.s. innihaldslýsingar námskeiða og tímalengd. Einnig skal skila staðfestu ljósriti af erlendu starfsleyfi, sé því til að dreifa, ásamt Letter of Good Standing, sem staðfestir að viðkomandi starfsleyfi sé í gildi.
- Erlendir ríkisborgarar skulu einnig skila inn staðfestu ljósriti af vegabréfi.
Útfylltar umsóknir um starfsleyfi þarf að undirrita og senda Landlæknisembættinu ásamt staðfestum ljósritum af nauðsynlegum gögnum. Með staðfestu ljósriti er átt við að samræmi milli frumrits og ljósrits sé staðfest, en gögnin fást staðfest hjá viðkomandi skóla (ef nám var stundað á Íslandi), hjá Landlæknisembættinu, á lögreglustöðvum eða hjá sýslumanni.
Gjald fyrir starfsleyfi er kr. 8.300.- en kr. 2.000.- fyrir vottorð vegna starfsleyfis. Við afgreiðslu leyfis er greiðsluseðill sendur umsækjanda.
ATH. Umsóknareyðublöðin opnast í nýjum glugga.
- Umsókn um starfsleyfi (doc 258 KB)
- Umsókn um vottorð vegna starfsleyfis (doc 256 KB)
Umsókn um vottorð vegna starfsleyfis má senda Landlæknisembættinuí pósti, símbréfi eða í tölvupósti á mottaka@landlaeknir.is.
Uppfært 21. janúar 2010